STAFRÆN NÁLGUN Á TEXTÍL

VEFUR UM MÖGULEIKA STAFRÆNNAR NÁLGUNAR Á TEXTÍLMENNT Í GRUNNSKÓLUM

Áherslur á nýsköpun og stafræna tækni í skólastarfi hafa verið áberandi síðustu ár með vaxandi kröfum um tækninotkun og hæfni sem er tengd við nýjar áherslur 21. aldarinnar. Að sama skapi er textíliðnaðurinn að breytast ört. Stafrænar áherslur í hönnun og framleiðslutækni og ný viðhorf um hvernig má nýta nútíma tækni í textíl í bland við hefðbundnar aðferðir eru orðnar mjög áberandi. Það er því greinilegt að kennsla í textílmennt þarf að huga að og taka mið af þessum breyttu áherslum. Margir spennandi möguleikar eru í boði fyrir textílmennt til að samþætta stafræna tækni og handverkið á skapandi hátt.

Á þessari síðu má finna kennsluleiðbeiningar og ýmsar upplýsingar sem tengjast skapandi vinnu með stafræna tækni í textíl. Efninu er er skipt fimm flokka eftir því hvaða búnaður er notaður, en þeir eru; raftextíll, Cricut maker, þrívíddarprentun, laser skurður og stafrænn útsaumur. Þennan búnað er algengt að finna í svokölluðum snillismiðjum, sem eru skapandi rými sem leggja áherslu á nýsköpun og stafræna framleiðslutækni.

KENNSLU-LEIÐBEININGAR

CRICUT MAKER

ÞRÍVÍDDARPRENTUN

RAFTEXTÍLL

GLOWFORGE LASERSKERINN

STAFRÆN ÚTSAUMSVÉL