Svalbarðseyrarviti var byggður 1920 en endurbyggður 1930.
Hann er 7.5m yfir sjó og er ljóshæð hans 9m yfir sjó.
Svalbarðseyrarviti var byggður árið 1920 og kostuðu sveitarfélög við fjörðinn að hluta byggingu vitans en ríkissjóður greiddi stærsta hlutann. Vitinn er byggður eftir sömu teikningu og vitarnir í Hrísey og Papaey. Árið 1933 var byggt steinsteypt anddyri við Svalbarðseyrarvita en hönnuðir vitans voru þeir Thorvald Krabbe og Guðmundur J. Hlíðar verkfræðingur og hönnuður anddyris Benedikt Jónasson verkfræðingur. Svalbarðseyrarviti varð því 100 ára árið 2020, var þá lagað og lappað upp á ýmislegt bæði við vitan og umhverfi hans.