Hlúðu að þeim er hugrekkið skortir.
Huggun í svartnætti og sorg.
Þegar depurð og drungi,
kvíði og kuldi dreifast um alla borg.
Gættu að þeim er gleðina skortir.
góðvildin er svo sterk
þegar hatur og harmur vonleysi og villa
heltaka mannanna verk.
Viðlag: Vertu sól fyrir þá sem að birtuna ei sjá
Vertu vin fyrir þann sem vonleysið fann.
Vertu viti á leið fyrir vini í neyð.
Vertu riddari kærleikans.
Elskaðu þá sem ástina skortir
annastu viðkvæma sál.
þegar brotsjór og brekkur
þrautir og þungi
slökkva í hjartanu bál.
Trúðu á þann sem tilganginn
skortir
taktu burt vafa og hryggð
þegar skömmin og skuggar
heiftin og hræðslan
skyggir á hverja dyggð
Viðlag: Vertu sól fyrir þá sem að birtuna ei sjá
Vertu vin fyrir þann sem vonleysið fann.
Vertu viti á leið fyrir vini í neyð.
Vertu riddari kærleikans.
syngdu burt leiða
lofaðu lífið
fagnaðu hverri stund
opnaðu hjartað
finndu hve léttist þín lund
Vertu sól fyrir þá
sem birtuna ei sjá
Vertu vin fyrir þann
sem vonleysið fann.
Vertu sól fyrir þá
sem að birtuna ei sjá
Vertu vin fyrir þann
sem vonleysið fann.
Vertu viti á leið
fyrir vini í neyð.
Vertu riddari kærleikans
Vertu riddari kærleikans
Texti: Dagmar Helga Helgadóttir, Valgerður Rakel Rúnarsdóttir