Það er gaman en um leið krefjandi að vera kennari. Hér inn set ég vangaveltur um lífið sem kennari. Ég ætla að deila hugmyndum, pælingum og góðum ráðum. En til að byrja með er bara að byrja, setja smá inn á síðuna, opinbera hana og finn hvort þetta er eitthvað fyrir mig.
Það var gaman og mikill heiður að vera valin af Apple til að kenna kennurum að nota iPad í kennslu. Ég byrjaði sjálf að nota iPada með nemendum Hjallastefnunnar 2012, hélt áfram með innleiðingu í Hafnarfiriði og svo var það 2017 sem ég fékk Apple kennara titilinn.
Í mínum huga fer það ekkert á milli mála að iPad auðgar alla kennslu. Gerir hana líflegri, eflir nemendur og líka kennara. Það eru ótal möguleikar með iPad í kennslu. Það gaf mér líka mjög mikið að fá að deila reynslu minni af tækni notkun í skólakerfinu, fá kennara með í nördaliðið og prófa sig áfram. Hætta að vera hrædd um að mistakast heldur læra af reynslunni. Hlakka til að segja meira frá...
Ég er UT deildarstjóri og kennsluráðgjafi í Setbergsskóla. Ég sé um spjaldtölvur skólans, innleiðingu og veiti kennurum ráðgjöf hvernig tækni getur orðið sem eðlilegasti hlutur kennslunnar. Ég byrjaði sem U&T kennari í Setbergsskóla haustið 2020
Það er gaman að vera kennari. Ég byrjaði að kenna haustið 1997 eftir mögnuð skólaár í HA-kennaradeild. Þar fékk frábæra grunnmenntun til að takast á við fjölbreytt verkefni kennarans. Það gagnaðist mér hve best að fá að vera í vettvangsnámi og æfingarkennslu í heila önn.
Frekari pælingar síðar :-)
Dæmi:
eTwinning, kennari út á landi, heimaskólakennarinn, forritunarkennarinn,
Kæri kennari
Ef þig langar að gera eitthvað virkilega skemmtilegt, alþjóðlegt og ekki með of mikla pappírsvinnu, þá mæli ég eindregið með eTwinning. Skemmtilegur og aðgegnilegur vettvangur til alþjóðlegs samstarfs. Það þarf ekki að bíða eftir að fylla út langar umsóknir, bíða eftir svari, fá samþykki eða vinna mikla forvinnu. Fyrsta skrefið er í raun bara að skrá sig inn á síðuna og skoða hvað er í boði. Hverjir og hvar skólar eru að leita að samsatarfi.
Sjálf hef ég tekið þátt í nokkrum verkefnum í gegnum eTwinning, flest voru einföld, eins og korta/bréfa skipti, leikir í mismunandi löndum og söngvar svo dæmi séu tekin. Þetta voru einföld verkefni þar sem ég setti mig í samband við kennara sem voru að óska eftir samstarfsskólum/kennurum. Einnig tók ég þátt í stærri verkefnum sem sneru að umhverfisvernd og þá sérstaklega að plasti, endurnýtingu þess en ekki síst að minnka notkun þess.
Hér eru nokkrir hlekkir:
eTwinning síðan
eTwinning live
Blastic síða sem varð til í einu samstarfinu