Mín eigin heimasíða.
Pælingar, hugmyndir og annað skemmtilegt.
Sunnudgskvöld - skila inn fyrstu örsögunni minni
Skrítið - enn eitt árið búið að bætast við síðan ég byrjaði á þessari síðu. Er búin að gera ýmislegt síðan siðast. En langar til að deila hér inn á að ég skilaði inn fystu örsögunni minni í dag til yfirlestrar hjá faglegum ritstjórum. Hvað er í gangi.... Já ég ákvað að skrá mig á smá ritnámskeið og er búin að njóta þess. Gaman að takast á við eitthvað nýtt, ögra sjálfri mér. Hver veit hvert þetta leiðir mig - kemur í ljós
Annars var helgin hálf furðuleg. Ég gaf frá mér stjórnarsetu í ÖBÍ. Skrítin tilfinning. Var komin með annan fótin þarna inn eða kannski meira svona ,,all in" og er svo bara farin eftir einungins tveggja ára setu í stjórn og framkvæmdarráði ÖBÍ. Það verður samt að viðurkennast að þetta voru ekki átakalaus ár... en góð eigi síður.
Fimmtudagur - hemasíðuvinna með yngsta barninu
Það getur stundum verið ágætt að eiga mömmu sem kann eiithvað í tölvum og tækni. Í dag gat ég komið Rán af stað í fyrstu heimasíðugerð sinni - en Rán er að vinna áhugasviðsverkefni um Rage against the Machines. Ekki sakar að ég elskaði líka þessa sveit á sínum tíma. Þórarinn ekki lítið búinn að monta sig af því að hafa verið á tónleikunum í Kaplakrika árið 1993. Verð líka alveg að viðurkenna að það er gott að eiga ekki unglinga sjálf á þessum árum.... Fylleríið, lætin, rúnturinn og stemningin var ótrúlega óhefluð. En - er hún það ekki alltaf þegar unglingar eru annars vegar...
Gott kvöld með kertaljósi og notalegri tónlist
Ég settist fyrir framan tölvuna og átti að skrifa tvær greinar í MS blaðið og kannski eitthvað meir... en þá fór ég eitthvað að hugsa, hvað hef ég verið að skrifa í blöðin síðustu misseri og fór þá að fikta í síðunni. Svo nú er eitthvað nýtt komið hér inn. Markmið mitt með greinaskrifum dagsins er samt að halda mér á jákvæðu nótunum. Horfa á lífið eins og það kemur og gera gott úr því.
Kíktu á greinasafnið :-)
Hvers vegna var ég nú að þessu? Þessa spurningu
Það er í raun svo gott að gera eitthvað á hverjum degi sem ögrar, veitir mér nýja reynslu, dýkar skilning eða kennir mér eitthvað. Um daginn fór ég t.d. í fyrsta tíma í golfnámskeiði. Veit...pínu miðaldra en um leið ótrúlega hressandi. Í dag er ég að skrifa vengaveltur mínar beint á netið og gefa þannig öðrum tækifæri á að gagnrýna, leiðbeina og læra af mér. Gaman ekki satt?
Þegar Þórarinn maðurinn minn skoðaði síðuna benti hann mér á að hún væri tveir hlutar, kennarinn og flakkarinn. Það er rétt. Hvað meira mig langar að setja inn kemur í ljós. Í gær datt mér t.d. að setja inn heimilis síðna, ráð, uppskriftir og tengla inn á eitthvað ,,sneddí" tengt heimilinu.
Það er í raun samt ekkert eitt svar við því hvers vegna ég er að þessu. Mig bara hefur langað lengi að vera með mína heimasíðu. Hvatinn kom fyrst og fremst frá U&T kennarasamfélaginu sem ég tel mig tilheyra. Það hefur verið gaman að sjá kollega mína opna hverja heimasíðuna á fætur annarri. Gaman að sjá grúsk, grjósku og pælingar allra þessara flottu kennara sett fram á auðveldan og aðgengilegan hátt fyrir okkur öll sem störfum við kennslu. Þökk sé #menntaspjall og UTís. Einnig var það alltaf pælingin að vera með blogg þegar við vorum á ferðalaginu og við byrjuð í raun aðeins á því. En það tók bara of mikla orku frá því að vera bara að lifa og njóta ævintýrsinis. Því hættum við því bara, ekkert flókið.
Ég hlakka sjálf til að skrifa meira, deila hugmyndum og myndum.
Pæling dagsins 19.9.2022