Jólavættirnir

Hérna má sjá jólavættina sem þið getið séð á aðventunni út um allan bæ

Stekkjarstaur

Stekkjarstaur er stirður í skapi, stífur í háttum og ákaflega íhaldssamur. Sumir segja að hann stundi jóga á laun, en það hefur aldrei fengist staðfest.


Gluggagægir

Gluggagægir er forvitnastur bræðra sinna og er haldinn gægjufikn á háu stigi. Hann hefur margoft verið handtekinn fyrir ósæmilega hegðun - og einu sinnifyrir alþjóðanjósnir, þegar hann gægðist inn á jólaball danska sendiráðsins.


Skyrgámur

Af jólasveinunum er Skyrgámur duglegastur að klára matinn sinn. Hann er sólginn í hvers kyns mjólkurvörur og þá einkum skyr. Hann hefur dálæti á nýjungum í skyrmenningu, sér í lagi svonefndum skyrdrykkjum.

Bjúgnakrækir

Fáir eru jafn hrifnir af unnum, þjóðlegum kjötvörum og Bjúgnakrækir. Hann hefur margsinnis lagt það til, í ræðu og riti, að soðin bjúgu með uppstúf verði gerð að þjóðarrétti Íslendinga.

Stúfur

Stúfur er, eins og margoft hefur komið fram, minnstur jólasveinanna. Hann hefur gert margt til að virka stærri, m.a. gengið á upphækkuðum skóm og ítrekað fengið sér svonefnt afró.


Hurðaskellir

Hurðaskellir er uppstökkastur bræðra sinna. Hann er óvenju hörund- og tapsár, spéhræddur og móðgunargjarn og á það til að rjúka burt í fússi af minnsta tilefni. Oftar en ekki skellir hann þá á eftir sér hurðum af öllu afli.


Jólakötturinn

Jólakötturinn er óvenju stór af heimilisketti að vera, enda er hann af norskum ættum, eins og flestar íslenskar óvættir. Hann er óumdeilanlega með mikla og góða matarlyst, einkum og sér í lagi á óþægum börnum.


Leiðindaskjóða

Leiðindaskjóða er litla systir jólasveinanna og er allt annað en leiðinleg. Hún þekkist á gríðastórri skjóðu sem hún dröslar með sér. Hún safnar leiðindum, veseni og amstri sem safnast upp á aðventunni - og fjarlægir það fyrir jólin.


Leppalúði

Leppalúði er seinni eiginmaður Grýlu og er fáeinum öldum yngri en hún. Hann er furðu viðkunnanlegur, af uppgjafa mannætu að vera, en á það til að gleymast heima þegar fjölskyldan heldur til byggða á aðventunn


Grýla

Grýla er viðskotaill skessa af virðulegri og ævafornri jöklatröllaætt. Hún hefur óbeit á jólunum og því er það kaldhæðnislegt að allir synir hennar hafa lagt fyrir sig starf jólasveinsins, en ekki orðið læknar eða flugumferðastjórar, eins og hún óskaði sér.


Surtla & Sighvatur

Surtla og Sighvatur eru tvíburar og yngstu börn Grýlu. Þau eru augasteinar jólasveinanna sem æfa sig allt árið á að gleðja þau og gefa þeim í skóinn. Þau geta því verið ansi heimtufrek og óstýrilát — og eiginlega bara óþolandi, einkum fyrir jólin. En sem betur fer eru þau næstum alltaf sofandi.


Kattarvali

Einn af gömlu sveinunum sem ekki komust

í 13 manna úrtakið á sínum tíma. Hann er

mikill dýravinur og elskar ketti. Notar hvert

tækifæri til að grípa þá á rófunni og knúsa

litlu skinnin í kaf.

Þórálfur

Er nýr jólavættur sem hefur bæst við jólafjölskylduna. Hann er afar reglusamur og ákveðinn, enda sér hann um allar sóttvarnir í helli jólasveinanna. Hann á það til að skella sér óvænt til byggða á aðventunni til að næla sér í nauðsynjar og þá er eins gott að passa vel upp á sprittbrúsana sína og grímurnar.

Rauðhöfði

Rauðhöfði er stór og mikill hvalur með fagurrautt höfuð, sem fyrr á öldum grandaði skipum og lét öllum illum látum úti á rúmsjó. Hann var um árabil vistaður í Hvalvatni - og mátti dúsa þar í refsingarskyni, þar til illhvelishátturinn rann af honum.