Inni

Þegar við erum ein

  • Hugmyndabanki fyrir inniveru frá Öskubusku

  • syngja saman er nærandi og eflandi. Harpa Þorvaldsdóttir tónmenntakennarar er með myndbönd með undirspili til að við getum öll sungið saman.

  • Búa til lista yfir nöfn allra í fjölskyldunni og raða í stafrófsröð

  • Læra að forrita

  • Búa til dagatal með afmælisdögum fjölskyldu og vina

  • Húsverk - t.d. að taka til í herberginu, búa um rúmið sitt, vaska upp. Tilvalið að setja á góða tónlist og gera húsverkin að leik.

  • Hugleiða

  • Lesa góða bók

  • Hlusta á ævintýri og sögur (til dæmis á RÚV eða Storytel)

  • Teikna, lita, föndra

  • Æfa sig í að halda bolta á lofti - æfa sig í að dripla bolta

  • Hringja í gegnum Skype í ömmu/afa, frænku eða frænda

  • Gera æfingar eins og armbeygjur, hnébeygjur, kviðæfingar, öndunaræfingar, sippa og hoppa

  • Gera tilraunir. Hægt að finna hugmyndir á YouTube og í bókum eins og Vísindabókin

  • Læra ný spil á spilastokk (frá spilabók, af netinu eða fá einhvern til að kenna þér)

  • Æfa sig til að bæta heimsmet - til dæmis í armbeygjum eða að standa á höndum

  • Læra að leggja kapal (með spilastokk)

  • Semja sögu

  • Læra nýtt tungumál

  • Læra dulmál

  • Búa til teiknimyndasögu

  • Búa til skutlu - gaman að gera risastóra skutlu og reyna að hitta t.d. ofan í kassa sem er í ákveðinni fjarlægð

  • Læra að binda fimm hnúta

  • Horfa á heimildamynd. Mikið úrval t.d. á Netflix

Þegar við getum leikið með öðrum

  • Búa til stuttmynd - fyrst þarf að gera handrit og velja í hlutverk leikara og leikstjóra. Síðan þarf að taka upp. Þeir sem hafa metnað vilja jafnvel setja inn tónlist og texta

  • Spila á venjuleg spil (spilastokk)

  • Spila borðspil

  • Búa til parís, t.d með teipi á stofugólfinu og leika sér

  • Fara í Kahoot - hægt að finna alls konar skemmtilega flokka

  • Lesa góða bók með öðrum

  • Fara í þrautakóng

  • Semja ljóð eða tónlist

  • Fjölbreyttir leikir með legókubbum

  • Keila með playmo köllum

  • Tjalda inni - búa til teppahús

  • Dansa

  • Syngja

  • Youtube: Zumba og yoga fyrir krakka, koma sér vel fyrir og gera saman

  • Mála: mála með óhefðbundnum penslum ( setja bómul á klemmur, álpappírskúlur, fjaðrir, eða hvað annað sem væri tilvalið). Gaman að fá að mála á kroppinn og veggina t.d. í baðinu og þá er fínta ð nota hreina jógúrt og smá matarlit 😊

  • Gera þrautabraut úr húsgögnum ( hægt að nota límband til að gera ákveðnar merkingar líka)

  • Byggja hús úr stólum/teppum/dýnum. Tilvalið að lesa svo í rýminu fyrir svefninn, jafnvel fá að gista.

  • Pappakassar: byggja virki, gera búninga, stafla, mála á þá, lita á þá…

  • Búa til tröllaleir, sjá uppskrift hér.

  • Eldhúsið: fara í gegn um skápana, leyfa börnunum að fá afgangana í eldhúsleik og skola umbúðir sem hægt er að nota í leikinn.

  • baka“ eða annað subb í eldhúsi og fá þau til að aðstoða t.d. við uppvask, æði að vera á tásunum og setja þær aðeins í vaskinn í leiðinni.

  • Búa til minnisspil eftir þeirra getu, teikna þá 2 eins myndir, eða gera 2 orð, form eða hvað sem er.

  • Búa til brautir: Hægt að nota málningarlímband til að gera bílabraut eða leið fyrir önnur leikföng, hægt að nota límband til að setja á milli veggja t.d á gangi og gera köngulóarvef sem þau þurfa að komast í gegn um….

  • Blása sápukúlur í fat: setja vatn og sápu í eldfast mót, svo nota rör til að blása.. verður rosa skemmtileg froða.. auðvitað hægt að gera úti líka.

  • Almennt föndur: klippa, líma , lita, giska á teikninguna o.s.frv.

  • Almennir leikir: feluleikur, fela hlut, spila spil, hlutverkaleikur, furðuföt

  • Snjalltæki: nota til að taka myndir, gera myndbönd, setja saman myndir af deginum í „bók“ og nota „educational“ forrit eins og t.d. drawing, puppet pals, book creator, garag band o.s.frv.

  • Hugmyndir af leikjum frá Ásu Helgu Spaghettí-turn, Eggjafall, skrifa þakkarbréf, gera rapp, og leika með lygi og sannleik - sjá hér.

  • Hugmyndir frá Rannveigu og Jónu um Að hafa gaman, leika og læra

menningarþemakvöld

Leikur fyrir alla fjölskylduna - Eldum, fræðumst og hlustum.

Skrifa á litla miða nöfn á ýmsum löndum t.d. Ítalía, Mexíkó, Noregur, Indland, Kína o.s.frv.- hér er listi til að rifja upp. Setja miða ofan í krukku og svo er dregin miði úr krukkunni. Það kvöld er hlustað á tónlist frá því landi og eldaður matur saman og kannski horft á kvikmynd frá því landi.

Allskonar til að gera í samkomubanni ... og ekki samkomubanni.

Sædís Sif Harðardóttir, tómstunda- og félagsmálafræðingur sendi okkur ýmsar hugmyndir sem settar hafa verið inn á vefinn og má líka nálgast hér.