Við heimsóttum Náttúruminjasafnið í Gautaborg. Þar voru allskonar steingerfingar, beinagrindur og uppstoppanir af sjávardýrum, froskum og allskonar dýrum sem við skoðuðum. Við gengum um listasafnið og skyssuðum og skoðuðum á sama tíma. Ég tók ekki margar myndir í minjasafninu - eiginlega enga. Mér fannst samt óskaplega gaman að fara á þetta safn. Hef ekki farið á svona stórt safn sem er svona áður. Það var gaman að ganga um og skoða. Þó ég sé ekki mikið að taka myndir af þeim hlutum sem ég er að skoða hverju sinni. En ég skissaði þetta hér sem sést fyrir neðan.