Við forum að heimsækja listaskólana Domen Konstskola og HDK Valand. Við fengum kynningu frá einum sem labbaði með okkur um skólann. Það eru allir með sína eigin stöð í þessum skólum sem að þau geta unnið verkin sín og allt þannig. Það eru helling af allskonar listum sem fólk er að læra. Sumir eru að læra að búa til skartgripi á meðan aðrir eru að læra myndlist. Sumir eru að búa til úr leir og svo er mismunandi efni sem fólk notar í listina sína. Sumir notast við timbur og úrgangslist eða svoleiðis. Í Domen fengum við gefins dagatal sem hengur upp á vegg heima hjá mér.
Við fórum líka í heimsókn á vinnustofur í Stenkolsgatan þar sem Bergþór Morthens er með vinnustofu. Við fengum að fara í mismunandi herbergi hjá þeim sem voru að vinna við sín listaverk. Ein gömul kona var með svona vefnaðarvél sem var ekki automatic og tekur hana nokkra mánuði að handvinna verkin. Svo var einn sem var óskaplega góður að mála og var að mála mikið samkvæmt sjálfum sér. Hann var með mjög flottan stíl. Bergþór var ekki að vinna að nýjum verkum (held ég) þegar ég var en hann var með gömul verk uppá vegg sem hann ætlaði að koma með til Íslands, en hætti við þar sem honum fannst þau ekki nægilega góð. Hann er mest með þrívíddarskúlptúra, canvas og spray paint. Hann notar hluti frá heimilinu sínu til að búa til list og hann sýndi okkur dæmi um það.
Mér fannst gaman að fara í skólana og sjá mismunandi hluti og upplifa öðruvísi stefnur og fá hugmyndir af því sem ég gæti gert seinna. Eins fannst mér gaman að sjá hvar Bergþór er að starfa og hversu mismunandi listafólk er þar á staðnum. Það er gaman að sjá nýja hluti til þess að fá sjálfur hugmyndir og líka bara að sjá hversu fjölbreytt list er.