Í ferðinni heimsóttum við allskonar listasöfn. Við heimsóktum Listasafn Gautaborgar, Röda Sten Konsthall og Röshkka hönnunarsafnið.
Við ferðuðumst með lest til að komast á staðina og tókum klukkutíma á hverjum stað til þess að skoða listaverkin sem voru á staðnum.
Hljóðverk, videoverk, málverk, ljósmyndir og svo voru skúlptúrar sem við skoðuðum í þessum söfnum. Í hönnunarsafninu var meira um eins og hannanir á húsgögnum, fötum og þannig háttar.
Van Gough landscape verk sem var á einu safninu vakti mesta athygli mína af þeim verkum sem ég sá í öllum þessum listasöfnum. Mér líkar við stílinn hjá Van Gough og því fannst mér þetta verk vera mjög flott og skemmtilegt að sjá. Ég meira að segja gleymdi að taka mynd af verkinu það var svo geggjað.
Við skyssuðum líka myndir í söfnunum. Mér fannst gaman að heimsækja þessi listasöfn og skoða ýmiskonar listaverk sem ég hef ekki séð áður. Hönnunarsafnið var líka flott og skemmtilegt. Mér fannst skemmtilegt að sjá hversu mismunandi listastefnur eru til.
Hér fyrir neðan eru myndir frá þessum söfnum.