Hæ, þetta er kynning mín á Gautaborg úr mínu sjónarhorni...
Ég fór frá Keflavík til Kaupmannahafnar fyrst og hitti liðið þar á BurgerKing á flugvellinum. Svo tókum við lest til Gautaborgar. Það var ekkert eðlilega skrítið að vera í lest, mér leið eins og pintrest boy. Ég hafði þó gaman af því og það var frekar kósý. Þegar við komum að Gautaborg, Ngl man ekkert hvernig það breyttist frá Danmörk til Svíþjóðar vissi ekki að við værum komin fyrr en við vorum fyrir utan aðal lestastopp Gautaborgar. Þessi borg var alveg dásamleg og falleg, ég var svo glaður að sjá svona vel hannaðar byggingar og tilfinningin þarna var rosa spennó. Allir líka mjög fallegir.