Eftir það að koma þangað þurftum við að finna hótelið. sem var bara 2 - 3 km í burtu. Við löbbuðum í gegnum lestastöðina og svo í gegnum mallið og þar var fullt af fólki, hef ekki séð svona mannfjölda áður. Og þá vorum við komin á comfort hotel sem er alveg fínt hótel en það voru framkvæmdir þannig ég var ekkert sérlega ánægður. Timing var ekki on key. Við gerðum alls kona í ferðinni en það sem stóð út var meðal annars Listasafn Gautaborgar. Það var alveg sturlað að labba þangað inn. Við löbbuðum upp svaka tröppur og fyrsta hæðin var algjört æði með fullt af minimalist list og svo styttur og alls konar. þetta var rosaleg tilfinning. Hef aldrei farið í safn áður held ég, ekki svona alvöru. Eftir fyrstu hæð fann ég herbergi með verk eftir pablo picasso og ég var starstuck. Ég elska hvernig hann teiknar og hversu articilate hann er með allt. Og safnið var alveg ógeðslega vel upphaldið. Ég sá málverk frá 3 áratugum aftur í tíman og meira en það og það er svo nett. 10/10 experience.
Fyrsta hæðin
Fyrir utan
Við fórum líka á röda sten... það var svakalega skrítið. Þegar við löbbuðum inn hélt ég að þetta væri eitthvað hefðbundið en nei. Á annari hæð held ég, man ekki alveg. Þá var myndbandslist í gangi sem ég veit ekki titilin af. Man ekki eftir neinu öðru, skal bara fjalla um þessi vídeóverk. Anyways, þetta fyrsta sem við skoðuðum var um einhverjar berbrjóstaðar manneskjur að flakka á milli brotum af gleri sem var alveg cool en svo var þetta bara mjög skrítið líka. Það var einhver sem setti gull gerivörtu ofan á geirvörtu á karli og strauk geirvörtuna svo. Mjög spes. En svo var annar skjár hliðin á - nota bene þetta var í rissssa stóru svæði (gamalli verksmiðju) og það var alveg dimt og engin loftræsting. Svo var þetta myndband um ekki neitt og var ógeðslega long pace. Ég horfði á það í svona 30 mín og var að reyna að skilja en það gerðist ekkert. þetta var bara kona að tala um eitthvað existential dæmi um garða og hvað við erum ekki að skilja þá og hvað þeir eru mikilvægir. Allt í lagi safn en ég gef því 5/10
Fórum líka í Röhsska hönnunarsafnið sem var mjög nett, það var fjallað um ikea og hvernig það varð svona risavaxið. Svo var líka bara fullt af gömlum hönnunum sem ég vissi ekkert af eins og fyrstu símarnir og fyrstu ikea stólarnir og alls konar stöff. Mjög kúl en ekkert eitthvað sem ég eltist við. 7/10