Fórum í skóla líka sem var mjög nálægt náttúrusafninu sem Beggi var að kenna í einusinni. Það var mjög kúl að skoða stofurnar þarna, allir mjög expressívir og fíla hvað það eru allir alveg sama um að sýna sinn lit. Ég elskaði málverkin sérstaklega.
Fórum líka í gamla skólan hans Begga sem fólk var að vinna í lokaverkefnum. Þetta er HDK Valand háskóli. Mjög góðir listamenn þarna inni. En ég veit ekki, kannski er myndlist ekki handa mér. ég fann enga tengingu þarna með mér sjálfum og aðstæðunum og fólkinu þarna, og verkunum þeirra, mjög mörg cool concept en það var ekkert sem stóð þannig séð út.
Fórum í stúdíóð hans begga meðal annara listamanna og það var ógeðslega nett. Það var maður þarna man ekki nafnið hans sem er málari og ég hef aldrei séð neinn með svona colour coordination og lýsingu á myndum ever. Þessi maður var alvöru galdra karl. það var ein mynd þarna inni af fisk sem var svo mögnuð að ég sagði það upphátt og hann var svo ekki að taka complimenti og sagði eitthvað "I'm not" þegar ég sagði að hann væri ógeðslega góður. Svo var einhver dúkkukona þarna líka sem var með dúkkusýningar og eitthvað, hún talaði aðeins meira en þessi gæji en hún var ekki með nein áhugaverð verk þarna inni að mínu mati. Svo var gömul kona í öðru herbergi (þetta var s.s hús með herbergjum fyrir hvern aðila) og hún var textíls kona sem bjó til sína eigin vefi og vó fallegar myndir með einhverri vél sem ég veit ekki alveg neitt um en hún var mjög gamaldags vél. Konan kunni ekki ensku þannig Beggi hjálpaði til með samræðurnar.