Sýningar
Sjálfboðaliðar
Á hverja sýningu þarf um það bil 10-12 sjálfboðaliða ef að það eru tvær sýningar, sem er oftast.
Helmingurinn sér um fyrri sýninguna en hinn hópurinn um hina. Þetta er gert til þess að allir sjálfboðaliðarnir geti farið líka inn í sal og fylgst með sýningunni í heild sinni.
Hlutverk sjálfboðaliða er að passa börnin baksviðs og sjá um þau. Eðli málsins samkvæmt er ekki hægt að hafa rúmlega tvöhundruð börn og alla foreldra þeirra baksviðs. Þess vegna er mikilvægt að nokkrir foreldrar hafi skýrt hlutverk baksviðs við að sinna hópnum.
Börnin koma með nesti og spila eða síma til þess að drepa tímann á meðan á æfingum stendur og til að fylla upp í tímann á milli sýninga.
Generalprufa
Á generalprufunni fylgist allur hópurinn með því hvernig sýningin á að fara fram.
Sjálfboðaliðar skipta með sér verkum.
Reynslumeiri foreldrar útskýra fyrirkomulagið og allir reyna að átta sig á flæðinu í sýningunni.
Það er mikilvægt að tímasetningar inn og út af sviðinu gangi vel fyrir sig.
Sumir nemendur hafa mjög knappan tíma til þess að skipta um búning á milli sýninga og það þarf að hjálpa nemendum að hafa yfirsýn yfir búningaskipti. Þetta er eitt af verkefnunum.
Sýningar
Fyrri hópurinn mætir með nemendum.
Hlutverk foreldra er að sjá til þess með nemendum að ganga vel um, hreinsa rusl og sjá til þess að öllum líði vel.
Hengja upp úlpur og geyma skó fram á gangi.
Foreldrafélagið hefur stundum keypt eða betlað ávexti til þess að gefa nemendum á milli atriðia.
Yngstu nemendurnir koma bara á seinni sýninguna og þá er mikilvægt að hafa feiri sjálfboðaliða til að sinna þeim sérstaklega.
Á milli sýninga er hægt að leyfa nemendum að fara fram og hitta foreldra sína en passa upp á að kjallarinn fyllist ekki af foreldrum. Yngstu nemendurnir verða að fara fram í fylgld fullorðinna.