Fjáröflun
Almenn fjáröflun
Félagsgjöld innheimt af fjölskyldum iðkenda í DSA einu sinni á ári 1500 kr. innheimt í gegnum heimabanka. Krafa kemur frá Foreldrafélagi DSA á kennitölu félagsins.
Foreldrafélagið getur ákveðið að selja veitingar eða varning á vetrar og vorviðburðum foreldrafélagsins í samstarfi við nemendafélagið.
Önnur verkefni, sýningar og viðburðir fyrir alla.
DWC fjáröflun
Foreldrar nemenda sem fá inngöngu í keppnislið DSA og öðlast þátttökurétt á heimsmeistaramóti DWC standa fyrir fjáröflun til að fjármagna bæði ferð til Reykjavíkur vegna undankeppninnar og ferðarinnar til Evrópu.
Keppnislið DSA heldur styrktarsýningu þar sem keppnisdansarnir eru sýndir. Þessi sýning fer fram í maí/júní.
Keppnislið DSA stendur fyrir almennri fjáröflun, sölu á varningi og fleira þessháttar.
Keppnislið DSA selur blóm á vorsýningu DSA.