Foreldrarölt

Fyrirkomulag röltsins:

Bekkjarfulltrúar

  • Eru ábyrgir fyrir því að manna röltið hjá sínum árgang.

  • Inn á skráningarforminu má finna dagsetningar fyrir hvern árgang.

Skráning

Best er að halda skráningu yfir hverjir ganga hverju sinni og má endilega verðlauna göngu glaðasta hópinn í lok skólaárs!

Af síðu Lækjarskóla:

Það er einróma álit lögreglu og forvarnafulltrúa bæjarins að reglulegt rölt foreldranna í bænum hafi skilað miklum árangri. Því til stuðnings nefna þeir fækkun afbrota á síðustu árum og færri mál sem koma upp varðandi unglinga, en þennan árangur má rekja til reglulegs foreldrarölts og fælingar-áhrifa sem það hefur þegar foreldrar eru á ferðinni í bænum.

Röltið verður eins öflugt og sú vinna sem við leggjum í það, þess vegna er mikilvægt að hver og einn leggi sitt lóð á vogaskálarnar.

Vitinn félagsmiðstöð

Foreldraröltið er í samstarfi við félagsmiðstöðina Vitann

Röltið er almennt á föstudögum en stundum er breyting á dögum ef einhver uppákoma er annan dag, í þeim tilfellum sendir Vitinn út tilkynningu

Mæting fyrir utan Vitann (Íþróttahús Lækjó) kl: 21:45 (hann lokar kl: 22:00) Starfsfólk Vitans tekur á móti foreldrum og getur leiðbeint um gönguleiðir

Alltaf má hringja í síma félagsmiðstöðvarinnar eða forstöðumann hennar ef eitthvað er óljóst

Götuvitinn keyrir annan hvern föstudag og er á bakvakt hinn á móti, við minnum líka á að hringja í 112 ef eitthvað kemur upp á

Gott er að Bekkjarfulltrúar venji sig á að skrá niður fjöldann sem mætti, til dæmis í opið excel skjal sem stjórn foreldrafélagsins getur gert, en einnig má nota facebook ef það hentar betur, eða annað.

Duglegasti hópurinn er verðlaunaður í lok skólaárs (það getur verið samkomulag bekkjarfulltrúa og foreldrafélagsins hvers konar verðlaun eru í boði).