6. bekkur fór í heimsókn á Náttúruminjasafn Íslands í Perlunni. Markmið heimsóknarinnar var að gefa nemendum tækifæri til að dýpka skilning sinn á samspili manns og náttúru með upplifun og fræðslu. Fyrst skoðuðum við sýninguna um ferskvatn í náttúru Íslands en nemendur lærðu um það á haustönninni. Síðan fórum við hratt í gegnum sýningu um jarðfræði Íslands og enduðum á jöklasýningu. Það var mikil upplifun að fara í íshellinn en aðeins 6. bekkur fær að fara þar frítt inn með kennurum. Frostið í hellinum beit í kinnar enda er það á bilinu -10°C til -15°C. Krakkarnir stóðu sig vel í ferðinni, gátu svarað fullt af spurningum, voru vel búnir og kvörtuðu ekki undan kulda þó við þyrftum að borða nestið úti um hávetur.