Í kjölfar þess að nemendur í 5. bekk lásu bókina um Benjamín dúfu, sem er full af áhugaverðu myndmáli, hafa þeir tekið myndmál og tákn í bókmenntum og kvikmyndum sérstaklega fyrir í íslenskutímum undanfarnar vikur.
Nemendur hafa rýnt aðeins í það hvernig myndmál glæðir texta lífi og hvernig dýr birtast sem tákn, t.d. í auglýsingum og teiknimyndum. Börnin hófu vinnu við að velja sér dýr úr teiknimynd og veltu fyrir sér persónueinkennum þess sem teiknimyndafígúru og báru saman við eiginleika þess sem dýr úti í náttúrunni. Verkefnin settu þau svo niður á lítið veggspjald og hér má sjá nokkrar myndir af þeim verkefnum.
Í næsta hluta verkefnisins unnu börnin hópverkefni þar sem hópunum var úthlutað dýri. Nemendur áttu að rannsaka og skoða hvernig dýrið er notað í auglýsingum, velta fyrir sér hvaða tilfinningar það vekur hjá manni og draga fram einhvern annan fróðleik um dýrið og hvað það stendur fyrir og hvernig það birtist okkur. Í kjölfarið unnu hóparnir svo veggspjöld, sem sjá má hér fyrir neðan. Að lokum fluttu þeir kynningu fyrir bekkinn sinn um dýrið og verkefnið og allir nemendur unnu svo sjálfsmat um hópavinnuna. Það var einstaklega gaman að sjá hvernig þau spegluðu sig í þessari vinnu með hópunum.