Í nóvember heimsótti slökkviliðið í Reykjavík 3. bekkinga. Þeir komu á slökkviliðsbíl sem börnin fengu að skoða og fræðast um og hvernig störf slökkviliðsmanna eru. Þau fengu einnig fræðslu um forvarnir og í hvaða númer ætti að hringja ef upp kæmi eldur. Börnin fóru svo heim með eldvarnargetraun sem kennararnir sendu til Slökkviliðsins og Halldóra Björg Gísladóttir, nemandi í 3. bekk í Hvassó, var svo ljónheppin að vera dregin út á eldvarnardeginum, 11. febrúar, sem er 112 dagur ársins.
Verðlaunin voru gjafabréf hjá spilavinum og hér sjáum við annars vegar mynd frá verðlaunaafhendingunni og hins vegar mynd af Halldóru eftir að hún hafði valið sér spil hjá Spilavinum.