Þakkardagur Frímófélaga
Frímófélagar sem valdir voru s.l. haust hafa nú lokið sínum störfum. Föstudaginn 23. janúar gerðu krakkarnir sér glaðan dag og fóru í fimleikasal Ármanns og út að borða á Olifa Pizzeria. Allir skemmtu sér vel og voru ánægðir með daginn. Nú hafa nýir Frímófélagar tekið við sem munu sjá um að stýra leikjum í fyrri frímínútum fram á vor.