1. bekkur fagnaði 100 skóladögum í grunnskóla með 100 daga hátíð föstudaginn 6. febrúar. Allur dagurinn fór í verkefni og föndur sem tengdust tölunni 100 eins og að teikna okkur sjálf 100 ára og skrifa 100 orð í sameiningu á plagg. Börnin föndruðu sér líka kórónur og enduðu daginn á bíó og kósý inni í stofu. Þar var boðið upp á 100 bita af snarli, 10 stykki af 10 sortum, í kramarhús sem við bjuggum til og skreyttum sjálf og allir fengu skírteini sem vottaði 100 skóladaga í Hvassó.