Það er góður siður hér á landi að halda öskudaginn hátíðlegan með því að klæða sig í alls konar búninga og skemmta sér. Margar furðuverur voru að venju á sveimi í skólanum þennan dag og gátu þær flakkað milli tíu stöðva þar sem ýmislegt skemmtilegt var í boði. Andlistmálning, Tarzanleikur, Legókubbar, öskupokagerð, dans, skák, arbandsgerð, spil, myndlist og bóklestur.