Hér er td. upplagt að vinna með ljóðið, lýsingarorð og myndlíkingar. Einnig er hægt að myndskreyta ljóðið út frá upplifun hvers og eins.
Þetta fallega lag samdi Björgvin Þ. Valdimarsson við ljóð Guðmundar Andra Thorssonar að beiðni Þórunnar Björnsdóttur og er það tileinkað henni. Ljóðið fjallar um íslenskuna, tungumálið okkar, fjölbreytni þess og verðmæti.
Hér er texta myndband með undirleik og laglínu til að læra lagið enn betur. Gangi ykkur vel 🎶