Verið hjartanlega velkomin á fyrirlestrarröðina En ég var einn! Sjálfsmynd stráka og kerfið sem haldin er í samstarfi Jafnréttisskóla Reykjavíkur, Geðhjálpar og Menntavísindasviðs Háskóla Íslands.

Til stóð að halda heils dags ráðstefnu á menntavísindasviði þann 18. mars sl. en vegna áhrifa Covid-19 var sú leið valin að skipta ráðstefnunni niður í fjórar rafrænar lotur. Fyrsta lota var haldin 9. september 2020 og bar hún heitið Karlmennska og strákar sem rekast á í kerfinu. Lota tvö var haldin fimmtudaginn 5. nóvember en þar var fjallað um hugsanlegan mun á strákum og stelpum. Fimmtudaginn 21. janúar var rætt um skaðlegar birtingamyndir og ofbeldi. Hægt er að skoða erindin frá lotu 1, 2 og 3 í gegnum tenglana hér fyrir neðan.

Fjórða og síðasta lotan verður haldin 18. mars 2021. Taktu daginn frá!