26.3 Matsviðmið fyrir skólaíþróttir.
Matsviðmið eru sett fram fyrir allar námsgreinar og námssvið við lok 4., 7. og 10. bekkjar. Þau eru lýsing á hversu vel nemandi hefur skilgreinda hæfni á valdi sínu. Skólum ber að setja matsviðmið fyrir námsgreinar og námssvið annarra árganga og gera grein fyrir þeim í skólanámskrá.
Matsviðmið eru birt á A–D matskvarða. A lýsir framúrskarandi hæfni, B lýsir góðri hæfni, C sæmilegri hæfni og D hæfni sem nær ekki viðmiðum sem lýst er í C. Gera má ráð fyrir að þorri nemenda nái þeirri hæfni sem tilgreind er í B, hæfni náð, þar sem þau eru byggð á hæfniviðmiðum árgangsins.
A fá þeir sem sýna framúrskarandi hæfni og C þeir sem ekki standast fyllilega þær kröfur sem gerðar eru í B viðmiðum. Ekki eru sett viðmið fyrir D, en sá vitnisburður er notaður þegar nemandi uppfyllir ekki kröfur sem gerðar eru í C viðmiðum. Skóli gerir þá sérstaka grein fyrir hæfni viðkomandi nemanda.
A–D matskvarða og matsviðmið er skólum skylt að nota við brautskráningu nemenda úr 10. bekk.
A–D matskvarða og matsviðmiðum við lok 4. og 7. bekkjar er ætlað að vera leiðbeinandi fyrir skóla og eru einungis sett fram til að styðja við námsmat við lok yngsta stigs og miðstigs.
Námsmat: Aðferðir leiðsagnarnáms eru nýttar þar sem lögð er áhersla á vaxandi hugarfar, árangursríka samvinnu og gagnvirkan lestur.
Upplýsingum um námsmat er haldið til haga í Mentor.
Nemendur fá umsögn í metanlegum hæfniviðmiðum sem eru sýnileg í Mentor.
Leiðsagnarnám: Áhersla er lögð á fjölbreyttar vinnuaðferðir í einstaklings, para og hópvinnu. Mikil samþætting er í námi nemenda og er reynt að tengja lestur við sem flestar námsgreinar.
Aðferðir leiðsagnarnáms eru nýttar þar sem lögð er áhersla á vaxandi hugarfar, árangursríka samvinnu og gagnvirkan lestur.
A Framúrskarandi hæfni og frammistaða í námi með hliðsjón af hæfniviðmiðum námsgreinar eða námssviðs.
B+ Notað þegar hæfni er sambærileg þeirri lýsingu sem á við einkunnina B og að hluta til þeirri lýsingu sem á við einkunnina A.
B Góð hæfni og frammistaða í námi með hliðsjón af hæfniviðmiðum námsgreinar eða námssviðs.
C+ Notað þegar hæfni er sambærileg þeirri lýsingu sem á við einkunnina C og að hluta til þeirri lýsingu sem á við einkunnina B.
C Sæmileg hæfni og frammistaða í námi með hliðsjón af hæfniviðmiðum námsgreinar eða námssviðs.
D Hæfni og frammistöðu í námi ábótavant með hliðsjón af hæfniviðmiðum námsgreinar eða námssviðs
Við styðjumst við A-D matskvarða í flestum tilfellum en sum verkefni eru þess eðlis að 1-10 (1-100) kvarði eða Lokið/ólokið á betur við.
Matsviðmiðin eiga við lok 4. bekkjar
A
Nemandi getur sýnt fram á mjög gott þol í leikjum og hlaupi. Sýnt mjög góðan styrk og stöðugleika í mismunandi vöðvahópum og mjög góða samhæfingu, liðleika, leikni og úthald í æfingum. Útskýrt af öryggi og góðum skilningi leikreglur í leikjum og fylgt þeim. Gert á skýran hátt góða grein fyrir gildi heilbrigðs lífernis fyrir starfsemi líkamans og unnið með einföld markmið í íþróttum. Þekkt mjög vel leikreglur og sýnt háttvísi í leik. Þekkt mjög vel helstu líkamshluta. Útskýrt og tileinkað sér mjög vel öryggis- og skipulagsreglur sundstaða. Framkvæmt mjög vel allar sundaðferðir og hefur mjög gott þol í 100 metra sundi. Framkvæmt og beitt einföldum grunnatriðum skyndihjálpar og bjargað sér í vatni af öryggi.
B
Nemandi getur sýnt fram á gott þol í leikjum og hlaupi. Sýnt góðan styrk og stöðugleika í mismunandi vöðvahópum og góða samhæfingu, liðleika, leikni og úthald í æfingum. Útskýrt vel leikreglur í leikjum og fylgt þeim. Gert góða grein fyrir gildi heilbrigðs lífernis fyrir starfsemi líkamans og unnið með einföld markmið í íþróttum. Þekkt vel leikreglur og sýnt háttvísi í leik. Þekkt vel helstu líkamshluta. Útskýrt og tileinkað sér vel öryggis- og skipulagsreglur sundstaða. Framkvæmt vel allar sundaðferðir og hefur gott þol í 100 metra sundi. Framkvæmt og beitt einföldum grunnatriðum skyndihjálpar og bjargað sér í vatni.
C
Nemandi getur sýnt fram á nokkuð gott þol í leikjum og hlaupi. Sýnt nokkuð góðan styrk og stöðugleika í mismunandi vöðvahópum og nokkuð góða samhæfingu, liðleika, leikni og úthald í æfingum. Útskýrt nokkuð vel leikreglur í leikjum og fylgt þeim. Gert sæmilega góða grein fyrir gildi heilbrigðs lífernis fyrir starfsemi líkamans og unnið með einföld markmið í íþróttum. Þekkt sæmilega vel leikreglur og sýnt háttvísi í leik. Þekkt nokkuð vel helstu líkamshluta. Útskýrt og tileinkað sér sæmilega vel öryggis- og skipulagsreglur sundstaða. Framkvæmt nokkuð vel allar sundaðferðir og hefur nokkuð gott þol í 100 metra sundi. Framkvæmt og beitt einföldum grunnatriðum skyndihjálpar og bjargað sér í vatni.
Matsviðmiðin eiga við lok 7. bekkjar.
A
Nemandi getur sýnt fram á mjög gott þol í hlaupi. Sýnt mjög góðan styrk og stöðugleika í mismunandi vöðvahópum og mjög góða samhæfingu, liðleika, leikni og úthald í æfingum. Útskýrt af öryggi og góðum skilningi leikreglur í hópíþrótt og einstaklingsíþrótt og fylgt þeim. Gert á skýran hátt góða grein fyrir gildi heilbrigðs lífernis fyrir starfsemi líkamans og unnið með langtímamarkmið í heilsurækt. Tengt mjög vel hlutverk taugakerfis, hjarta, blóðrásar og lungna við líkamlega áreynslu. Útskýrt og tileinkað sér mjög vel öryggis- og skipulagsreglur sundstaða. Framkvæmt mjög vel allar sundaðferðir og hefur mjög gott þol í 300 metra sundi. Framkvæmt, útskýrt og beitt grunnatriðum skyndihjálpar og framkvæmt björgun úr vatni af öryggi. Synt af öryggi 12 m björgunarsund með jafningja.
B
Nemandi getur sýnt fram á gott þol í hlaupi. Sýnt góðan styrk og stöðugleika í mismunandi vöðvahópum og góða samhæfingu, liðleika, leikni og úthald í æfingum. Útskýrt vel leikreglur í hópíþrótt og einstaklingsíþrótt og fylgt þeim. Gert góða grein fyrir gildi heilbrigðs lífernis fyrir starfsemi líkamans og unnið með langtímamarkmið í heilsurækt. Tengt vel hlutverk taugakerfis, hjarta, blóðrásar og lungna við líkamlega áreynslu. Útskýrt og tileinkað sér vel öryggis- og skipulagsreglur sundstaða. Framkvæmt vel allar sundaðferðir og hefur gott þol í 300 metra sundi. Framkvæmt, útskýrt og beitt helstu grunnatriðum skyndihjálpar og framkvæmt björgun úr vatni. Synt 12 m björgunarsund með jafningja.
C
Nemandi getur sýnt fram á nokkuð gott þol í hlaupi. Sýnt nokkuð góðan styrk og stöðugleika í mismunandi vöðvahópum og nokkuð góða samhæfingu, liðleika, leikni og úthald í æfingum. Útskýrt nokkuð vel leikreglur í hópíþrótt og einstaklingsíþrótt og fylgt þeim. Gert nokkuð góða grein fyrir gildi heilbrigðs lífernis fyrir starfsemi líkamans og unnið með langtímamarkmið í heilsurækt. Tengt sæmilega vel hlutverk taugakerfis, hjarta, blóðrásar og lungna við líkamlega áreynslu. Útskýrt og tileinkað sér nokkuð vel öryggis- og skipulagsreglur sundstaða. Framkvæmt nokkuð vel allar sundaðferðir og hefur nokkuð gott þol í 300 metra sundi. Framkvæmt, útskýrt og beitt helstu grunnatriðum skyndihjálpar og framkvæmt björgun úr vatni. Synt björgunarsund með jafningja.