Megintilgangur náms og kennslu í lykilhæfni er að þroska sjálfsvitund og samskiptahæfni nemenda, búa þau undir virka þátttöku í lýðræðissamfélagi og að þeir öðlist getu til að nýta sér styrkleika sína til áframhaldandi náms og starfsþróunar þegar þar að kemur. Lykilhæfni snýr að nemandanum sjálfum, er ætlað að stuðla að alhliða þroska hans og tengist öllum námssviðum. Góð lykilhæfni gerir einstaklingum kleift að læra við ólíkar aðstæður, takast á við breytingar, vinna í samfélagi með öðru fólki og bregðast við á þann hátt sem hentar þeim sjálfum til uppbyggingar og farsæls lífs. Lykilhæfni er hæfni fyrir borgara framtíðarinnar, einstaklinga sem þurfa að vera tilbúnir að læra allt lífið (Gunnar E. Finnbogason, 2016).
Námsmarkmið
Athugið að hæfniviðmiðin miðast við lok 4.bekkjar.
Þar af leiðandi þurfa nemendur í 1. bekk ekki að hafa náð öllum þessum hæfniviðmiðum. En við leitumst eftir að undirbúa nemendur til að þeir geti náð þessum markmiðum í lok 4. bekkjar.
Fjölbreyttar sundaðferðir
tekið þátt í fjölbreyttum leikjum í vatni,
Að nemandi geti:
Heilsuefling
notið sín í vatni,
Að nemandi geti:
Þolsund
gert æfingar sem reyna á þol í 100 metra sundi,
Sprettsund
gert æfingar sem reyna á loftfirrt þol í 8 metra sundi,
Bringusund
synt 12 metra bringusund með eða án hjálpartækja,
Að nemandi geti:
Baksund
synt 12 metra skólabaksund og baksund með eða án hjálpartækja,
Að nemandi geti:
Skriðsund
synt 12 metra skriðsund með eða án hjálpartækja,
Að nemandi geti:
Kafsund
synt 5 metra kafsund viðstöðulaust,
Að nemandi geti:
Björgunarsund
bjargað sér í vatni.
Að nemandi geti: