23.1
Skólaíþróttir, ásamt grunnþættinum heilbrigði og velferð, gegna veigamiklu hlutverki í heilsuuppeldi og heilsurækt nemandans allan grunnskólann. Heilbrigði byggist á andlegri, líkamlegri og félagslegri vellíðan sem ræðst af flóknu samspili einstaklings, aðstæðna og umhverfis. Því skal skólastarf skipulagt með það í huga að efla heilbrigði og stuðla markvisst að velferð og vellíðan nemenda. Öll hreyfing, hvort sem um er að ræða tilfallandi eða skipulagða þátttöku, miðar að því að viðhalda eða bæta líkamlega færni, andlega vellíðan og heilbrigði, stuðla að félagslegum tengslum eða að ná árangri í keppnis- og afreksíþróttum á öllum stigum.
Með íþróttum og líkamsrækt má þjálfa og efla félags-, tilfinninga- og siðgæðisþroska nemenda, kenna markmiðasetningu og streitustjórnun, skapa þeim aðstæður til heilbrigðra lífshátta og þróa seiglu og þrautseigju. Íslensk náttúra og útinám er kjörinn vettvangur fyrir hreyfingu og ýmiss konar íþróttir og áhersla skal lögð á að kynna fyrir nemendum íþróttaiðkun úti við allt árið. Sundiðkun er heilsueflandi hreyfing og góð leið til heilsubótar.
Menntagildi og megintilgangur skólaíþrótta í Aðalnámskrá grunnskóla
Nemendur fá tækifæri til að ná góðri vatnsfærni, venjast vatni og upplifa öryggi og vellíðan í vatni sem grunn að frekara sundnámi.
Lögð er áhersla á að kenna nemendum undirstöðuatriði sundtaka, líkamsbeitingu, öndun og samhæfingu og þróa færni í mismunandi sundaðferðum í samræmi við þroska og reynslu hvers og eins.
Nemendur læra að fylgja öryggisreglum í og við vatn, þekkja hættur og tileinka sér ábyrg og örugg vinnubrögð í sundlaugum og á sundsvæðum.
Áhersla er lögð á að nemendur kynnist sundi sem heilsueflandi hreyfingu sem styrkir úthald, líkamsstyrk, hjarta- og æðakerfi og stuðlar að almennri vellíðan.
Nemendur eru hvattir til að upplifa ánægju, leikgleði og jákvæða þátttöku í vatni og byggja upp trú á eigin getu.
Samvinna, jákvæð samskipti og stuðningur milli nemenda eru í fyrirrúmi í sundkennslu, bæði í leikjum, verkefnum og æfingum.
Sundnámið tengist heildstæðu námi í hreyfingu og heilsu og styður við markmið um virkan lífsstíl, sjálfstæði og ábyrgð í umgengni við líkama og umhverfi.