Megintilgangur náms og kennslu í lykilhæfni er að þroska sjálfsvitund og samskiptahæfni nemenda, búa þau undir virka þátttöku í lýðræðissamfélagi og að þeir öðlist getu til að nýta sér styrkleika sína til áframhaldandi náms og starfsþróunar þegar þar að kemur. Lykilhæfni snýr að nemandanum sjálfum, er ætlað að stuðla að alhliða þroska hans og tengist öllum námssviðum. Góð lykilhæfni gerir einstaklingum kleift að læra við ólíkar aðstæður, takast á við breytingar, vinna í samfélagi með öðru fólki og bregðast við á þann hátt sem hentar þeim sjálfum til uppbyggingar og farsæls lífs. Lykilhæfni er hæfni fyrir borgara framtíðarinnar, einstaklinga sem þurfa að vera tilbúnir að læra allt lífið (Gunnar E. Finnbogason, 2016).
Námsmarkmið
Fjölbreyttar sundaðferðir
beitt fjölbreyttum sundaðferðum,
Heilsuefling
eflt eigin heilsu í vatni,
Þolsund
gert æfingar sem reyna á loftháð þol í 300 metra sundi,
Sprettsund
gert æfingar sem reyna á loftfirrt þol í 12 metra sundi,
Bringusund
sýnt leikni og synt 25 metra bringusund viðstöðulaust,
Baksund
sýnt leikni og synt 25 metra baksund viðstöðulaust,
Skriðsund
sýnt leikni og synt 25 metra skriðsund viðstöðulaust,
Kafsund
sýnt leikni og synt 8 metra kafsund viðstöðulaust,
Björgunarsund
synt björgunarsund með jafningja að lágmarki 12 metra,
Þol í vatni
troðið marvaða í hálfa mínútu.