Vinsamlegast mætið tímanlega til brottfarar hverju sinni. Ekki er beðið eftir þeim sem mæta seint þegar lagt er af stað í ferðir.
Vinsamlegast látið vita ef þið ákveðið að koma ekki með í einhverja ferð. Senda t.d. sms á fararstjóra eða biðja einhvern um að koma skilaboðum til fararstjóra.
Gætið ykkar að fylgja hópnum og láta vita ef þið tefjist. Ágætt er að hafa „nágrannavaktina“ virka.
MORGUNMATUR:
Morgunmatur á hótelinu alla daga frá kl. 07 – 10. Nema brottfarardag, þá hefst morgunmatur kl. 06:20.
HÓTELIÐ:
Hótelið heitir Hotel Città á ítölsku en Stadt Hotel á þýsku og er við Piazza Walter.
Vinsamlegast virðið reglur hótelsins um að ganga hljóðlega um þegar komið er á hótelið seint á kvöldin eða á næturnar. Virðum aðra hótelgesti. Annars er þjónustan þarna mjög liðleg.
Ef einhverjar séróskir eru um herbergi, t.d. eftir hæðum eða eitthvað annað, látið vita og reynt verður eins og hægt er að koma til móts við óskir viðkomandi.
Upplýsingar um Wellness Center (SPA), opnunartíma og verð er að fá í móttöku hótelsins.
SÚPERMARKAÐIR:
Súpermarkaðir í nánd við hótelið. Despar, Via della Rena 22, farið í gegnum Galleria Greif frá Piazza Walther og niður stiga, opið mán. – lau. 8:30 - 19. Despar, Piazza Erbe, opið mán. – lau. 7:30-19:00. Eurospar, Via Museo 39, við hliðina á H&M, opið mán. – lau. 8:30 til kl. 19:30, sunnud. 9 – 18.
VERSLANIR:
Opnunartímar á bilinu 9 – 10 á morgnanna og til 18 – 19 á kvöldin. Sumar eru með lokað á milli 12:30 – 15, en flestar eru opnar allan daginn, misjafnt er hvaða verslanir eru opnar á sunnudögum, en t.d. H&M og stærri verslanir eru yfirleitt opnar. Aðalverslunargöturnar eru Via dei Portici og Via Museo.
SÖFN:
Athugið opnunartíma safna. Þau eru oft lokuð einn og einn dag í viku, oft mánudaga.
HRAÐBANKAR:
Það eru t.d. hraðbankar á Piazza Walther, við hliðina á hótelinu, í Cassa di Risparnio/Sparkasse, bæði þegar gengið er út úr anddyri hótelsins og eins á torginu sjálfu.
VATN:
Kranavatn í Bolzano er drykkjarhæft. Annarsstaðar er ráðlagt að drekka flöskuvatn. Vatn er selt bæði með kolsýru: acqua gassata / acqua frizzante og án: acqua naturale.
Í Bolzano er hægt að biðja um kranavatn með matnum, ekki er greitt fyrir það, venjan er að þetta sé kallað “borgarstjóravatn” og er þá beðið um Bürgermeisterwasser eða Wasser aud dem Wasserhahn, aqua di sindaco eða aqua dal rubinetto.
Gætið þess að vera alltaf með eitthvað með ykkur að drekka í ferðunum, orkudrykkir eru mjög góðir, sérstaklega fyrir þá sem þola illa mikinn hita og jafnvel eitthvað snarl til að nasla í, t.d. epli.
Í anddyri hótelsins er kælir með vatni sem gestum er heimilt að fá sér úr.
LEIGUBÍLAR:
Ef einhverjir treysta sér ekki til að ganga og vilja nýta sér þjónustu t.d. leigubíla, þá vinsamlegast látið vita tímanlega og fararstjórar eða elskurnar í lobbíinu á hótelinu sjá um pöntunina.
ÞJÓRFÉ:
Það er ekki nauðsynlegt að skilja eftir þjórfé en oftast er það þó gert. Á veitingahúsum: frá 5 – 10% af heildarreikningi. Eðlilega er þjórfé ekki gefið ef matur og þjónusta stóðust ekki væntingar. Á börum eru skilin eftir u.þ.b. 20 cent, fer eftir
neyslu og fjölda. Sé setið fram eftir og jafnvel fram yfir opnunartíma, t.d. á hótelbarnum, þá skildi gefa þjórfé, eins ef setið er í stórum hóp.
Líki fólki þjónustan á þeim veitingastöðum sem hópurinn borðar á, er sjálfsagt að skilja eftir smá aur, eins fyrir rútubílstjóra þegar farið er í lengri ferðir.
SÓLARÁBURÐUR OG LÉTTAR YFIRHAFNIR Á SÓLRÍKUM DÖGUM:
Gardadaginn er mikilvægt að gæta sín á sólinni, sérstaklega þegar siglt er á milli bæjanna. Ekki gleyma sólarvörninni á nefið og einhverju léttu á axlirnar. Þá kular oft með kvöldinu.
SKÓFATNAÐUR OG KLÆÐNAÐUR Í GÖNGUFERÐUM:
Takið með ykkur þægilega skó til að ganga í, sérstaklega í ferðirnar upp í fjöllin, og léttar yfirhafnir, það getur verið mikill hitamunur.
GÖNGUFERÐIR OG SKOÐUNARFERÐIR:
Í gönguferðun og skoðunarferðum skal gæta þess að fara eftir tilmælum fararstjóra og fylgja hópnum. Passið upp á hópinn og takið tillit til þess að ekki hafa allir sama gönguhraða. Þegar gengið er í fjalllendi ber sérstaklega að fylgja göngustígum og stíga ekki út á brúnir, bergið er laust í sér og fallið getur verið hátt og lífshættulegt. Hættur geta leynst í skóginum og gjótur og bjargbrúnir illsjáanlegar fyrir gróðri. Hver og einn ber ábirgð á sjálfum sér og því að fara eftir fyrirmælum.
OFNÆMI, SÉRÓSKIR Í MAT, SJÚKDÓMAR:
Vinsamlegast látið vita tímanlega um ofnæmi/óþol og eins séróskir í mat svo hægt sé að láta vita á veitingastöðum. Eins er gott að vita ef að um alvarlega sjúkdóma er að ræða.
BREYTINGAR Á FERÐALÝSINGU:
Eldhúsferðir – Cucina Travel áskilur sér rétt til að hreyfa við ferðalýsingu og jafnvel færa ferðir milli daga, svo framarlega sem það hafi ekki áhrif á verð ferðarinnar. Tímasetningar sem gefnar eru upp við pöntun ferðar eru áætlaðar og geta breyst. Fylgist vel með upplýsingatöflu. (Sjá Almenna ferðaskilmála S.A.F nr. 6)
ÓÞÆGINDI OG ÖNNUR VANLÍÐAN OG KVARTANIR:
Ef vart verður óþæginda eða vanlíðan þá látið fararstjóra vita sem allra fyrst. T.d. vegna bílveiki, aðstæðna á hótelherbergjum, vegna matar eða þess sem mögulega getur komið til og valdið óþægindum. Vinsamlegast komið öllum kvörtunum á framfæri við fararstjóra um leið og einhver mál koma upp. (Sjá Almenna ferðaskilmála S.A.F. nr. 8)
FARANGUR og VERMÆTI
Ferðaskrifstofan ber ekki ábyrgð á skemmdum sem kunna að verða á farangri í leiguflugi eða í öðrum farartækjum svo sem rútum og öðrum farartækjum eða ef farangur berst farþega seint. Ferðaskrifstofan eða fararstjórar sem vinna á hennar vegum ber ekki ábyrgð á því ef farangur tapast. Farþegum er frjálst að skilja farangur sinn eftir í rútum eða á þeim stöðum sem stoppað er á, en það er ávallt á þeirra eigin ábyrgð. Sé brotist inn í rútur eða farartæki ber ferðaskrifstofa eða fararstjóri ekki ábyrgð á því.
Við mælum með að hvorki peningar né önnur verðmæti séu skilin eftir herbergjum eða í rútum og öðrum farartækjum. Hvorki ferðaskrifstofan, fararstjórar, gististaðir né fyrirtæki farartækja eru ábyrg ef verðmæti tapast.
Fólki er alltaf velkomið að leita ráða hjá fararstjórum.
SETJIÐ SÍMANÚMER FARARSTJÓRA Í SÍMANN YKKAR!
Elli 0039 331 922 3515
Jóna 00354 848 4712
Netfang: sala@eldhusferdir.is