Verð frá 141.000 kr. án flugs
Aukagjald fyrir einbýli frá 25.500 kr.
Innifalið í verði:
• Rúta til og frá flugvelli m. leiðsögn
• Gisting í 2 manna herbergi m. morgunverði og wellness center (sjá undantekningu v. einstaklingsherb.)
• 3 glæsikvöldverðir (komudagur, Gardavatnsdagur og kvöldmáltíð síðasta kvöldið. Drykkir innifaldir í verðií þessum máltíðum, 1 – 3 glös eftir hvar borðað er)
• Gardavatnsdagur: Rúta, sigling á Gardavatni og kvöldverður (hádegisverður ekki innifalinn)
• Allar rútuferðir í skipulagðri ferð fyrir hópinn að undanskildum þeim sem tengdar eru sérferðum
• Ferða- og tónleikaskipulag (miðað við 1 tónleika þar sem tónleikaskipulag, rúta og þjónusta í kringum tónleikana er innifalið)
• Öll fararstjórn m. íslenskum fararstjórum
Ekki innifalið í verði og valfrjálst:
• Flug með Icelandair eða öðru flugfélagi (sjá ferðaskilmála flugfyrirtækja, m.a. um farangur)
• Aðgangseyrir inn á söfn, kláfar, lestarferðir/strætó, hádegisverðir, 4 kvöldverðir, drykkir og hressingar nema annað sé tekið fram
• Sérferð: Fjallaferð með kláfi og lest ásamt hunangssafni og snafs, 4.000 kr. (sjá ferðalýsingu hvað er innifalið)
• Sérferð: Alpaferð í Dólómítana, 9.600 kr. (sjá ferðalýsingu hvað er innifalið)
• Sérferð: Vínsmökkum A. 6.000 kr. (sjá ferðalýsingu hvað er innifalið)
• Einnig möguleiki á að bjóða upp á dagsgönguferð í Ölpunum
Verð þetta miðast við 85 - 92 manns og að hópurinn ferðist saman. Allar breytingar á ferðinni eru á kostnað viðkomandi einstaklings, s.s. eins og framlenging á ferð, breytingar á heimflugi, fleiri gistinætur, kostnaður við að koma sér á flugvöllinn ef ferð er breytt o.s.frv. og er breytingagjald tekið fyrir alla þjónustu vegna breytinga nema þjónustu v. framlengingar á gistingu á Hotel Città. Hópaverð í flugi miðast við að flogið sé báðar leiðir, sjá skilmála flugfélaga varðandi hópaflug. (sjá neðar Framlenging á ferð).
Verð þetta getur breyst þar sem ekkert hefur verið bókað eða staðfest. Einnig er fyrirvari v. óvæntra verðhækkana hjá þjónustuaðilum t.d. vegna skatta-, tolla- og þjónustugjaldabreytinga, hækkun á eldsneyti o.s.frv. (sjá kafla um verð og verðhækkanir)
Þann 6.10.2016 þarf að greiða staðfestingargjald sem er 30.000 kr. Staðfestingargjaldið er óendurkræft. (Sjá kafla um forfallatryggingu og Almenna ferðaskilmála S.A.F. nr. 2)
Fullnaðargreiðsla annarar þjónustu en flugs fari fram eigi síðar en 8 vikum fyrir brottför eða (dagsetning) þá skv. samkomulagi, t.d. sé þess óskað að greiða fyrir ferðina í fleiri greiðslum en staðfestingargreiðslu og fullnaðargreiðslu, en þá verður viðskiptavinur að snúa sér til starfsfólks Eldhúsferða og gera samkomulag varðandi greiðslur. Sé bókun gerð innan 8 vikna skal fullnaðargreiðsla fara fram við bókun. Samið er við hvern hóp fyrir sig um háttarlag greiðslu.
Greiðsluleið 1.
Millifærsla á bankareikning:
1. Staðfestingargjald 7 dögum eftir að tilboði er tekið (Fæst ekki endurgreitt) 6.10.2016
2. Fyrsta greiðsla 3 mán. fyrir komudag eða eftir samkomulagi
3. Fullnaðargreiðsla 8 vikum fyrir komudag 3.8. 2017
Greiðsluleið 2.
Millifærsla á bankareikning:
1. Staðfestingargjald 7 dögum eftir að tilboði er tekið (Fæst ekki endurgreitt) 6.10.2016
2. Fullnaðargreiðsla 8 vikum fyrir komudag 3.8.2017
Greiðsluleið 3.
Með kreditkorti, VISA eða Mastercard:
1. Staðfestingargjald 7 dögum eftir að tilboði er tekið (Fæst ekki endurgreitt) 6.10.2016
2. Eingreiðsla eða greiðsludreifing 3.8.2017 Vinsamlegast hafið samband tímanlega ef óskað er eftir greiðsludreifingu (sjá Kreditkortagreiðslur)
Millifærslur greiðast inn á reikning Eldhúsferða – Cucina Travel ehf. kt. 470513-2680, nr. 0307-26-1034 í Arion Banka á Blönduósi.
Vinsamlegast sendið tilkynningu um millifærsluna á sala@eldhusferdir.is og setjið nafn ferðarinnar í skýringu.
Kreditkortagreiðslur – símgreiðslur, þjónustunúmer 848 4712 – Jóna Fanney.
Ath. sé ætlunin að greiða með kreditkorti þá þarf að gera ráð fyrir kreditkortatímabilum. Nýtt tímabil hefst 22. hvers mánaðar f. venjulegar kortagreiðslur en sé ætlunin að dreifa greiðslum þá gilda mögulega aðrar dagsetningar og gera þarf greiðsludreifingarsamninga fyrir 17. hvers mánaðar, þá þarf einnig að gera ráð fyrir því að eftir vissan tíma er ekki hægt að dreifa greiðslum og jafnvel ekki heldur greiða með kreditkorti þar sem lokagreiðsla þarf að hafa borist Eldhúsferðum – Cucina Travel 8 vikum fyrir komudag. Vinsamlegast snúið ykkur til starfsfólks Eldhúsferða – Cucina Travel sem fyrst hafið þið hug á að greiða með kreditkorti eða greiðsludreifa og fáið upplýsingar.
Aðrar greiðslur s.s. eins og gjafabréf.
Þeir sem eiga vildarpunkta hjá Icelandair geta nýtt sér þá ef flogið er með Icelandair. WOW air eru aðilar að Points. Þeir sem vilja nýta sér punktana eru vinsamlegast beðnir um að láta starfsfólk Eldhúsferða – Cucina Travel vita áður en gengið er frá greiðslum. Einnig er hægt að nýta sér svokallaðar orlofsávísanir sem gefnar eru út af stéttarfélögum, en gæta skal þess að þær gildi hjá því flugfélagi sem flogið er með. Einungis er hægt að nota eitt vildarpunktagjafabréf og eina orlofsávísun á mann fer þó eftir upphæð flugkostnaðar. ATH. þessir vildarpunktar og orlofsávísanir gilda einungis upp í þann kostnaðarhluta ferðarinnar er að fluginu snýr. (Sjá upplýsingar um notkun vildarpunkta á heimasíðu Icelandair og upplýsingar um orlofsávísanir hjá stéttarfélagi viðkomandi eða heimasíðu WOW air)
VERÐ OG VERÐBREYTINGAR:
Uppgefið verð við staðfestingu hópatilboðs og fullnaðargreiðslu er háð breytingum á erlendum gjaldmiðli m.a. vegna hótels, rútu og annarrar þjónustu sem greitt er fyrir í evrum og skal gengi dagsins sem fullnaðargreiðsla fer fram gilda. Þá er einnig hafður á fyrirvari vegna óvæntra hækkana á m.a. eldsneyti, sköttum og vegtollum. Sé búið að greiða upp sett verð og verði hækkun á t.d. flugi áskilja Eldhúsferðir sér rétt til þess að óska eftir greiðslu frá viðkomandi þátttakanda vegna þess aukakostnaðar. (Sjá Almenna ferðaskilmála S.A.F. nr. 3)
AFTURKÖLLUN EÐA BREYTINGAR Á PÖNTUN
Heimilt er að afturkalla farpöntun án kostnaðar sé það gert innan viku frá því að pöntun var gerð enda séu að lágmarki 5 vikur í brottför. Berist afpöntun síðar, en þó fjórum vikum fyrir brottför, áskilja Eldhúsferðir sér rétt til að halda
a.m.k. staðfestingargjaldinu eftir, hér gildir þó einnig að gangi reglur samstarfsaðila lengra en ferðaskilmálar Eldhúsferða – Cucina Travel eða þegar samningar við samstarfsaðila koma í veg fyrir endurgreiðslu (t.d. „non refundable flugfarseðlar eða bókanir á hótelum) þá fæst sá hluti ferðarinnar ekki endurgreiddur sama á við um greiðslur sem Eldhúsferðir – Cucina Travel eiga að greiða eða hafa greitt til samstarfsaðila á Íslandi eða erlendis en sá hluti ferðarinnar fæst ekki endurgreiddur nema því aðeins að endurgreiðsla fáist frá viðkomandi þjónustuaðilum. Varðandi flugið gilda endurgreiðslureglur viðkomandi flugfélags. Sé pöntun afturkölluð með minna en 28 daga en meira en 14 daga fyrirvara heldur ferðaskrifstofan eftir a.m.k. 50% af verði ferðarinnar. Berist afpöntun með skemmra en 14 daga fyrirvara á ferðaskrifstofan kröfu á a.m.k. 75% fargjaldsins, en sé fyrirvarinn aðeins fjórir virkir dagar eða skemmri er allt fargjaldið óafturkræft. (Sjá Almenna ferðaskilmála S.A.F. nr. 4)
FLUG:
Hvað varðar flugið þá gilda skilmálar viðkomandi flugfélags um allt er að fluginu snýr, s.s. eins og endurgreiðslu, forfallagjald og bókunar- og breytingagjöld. Engar endurgreiðslur eru leyfðar nema greitt hafi verið forfallagjald fyrir flugið og skilmálum þess fullnægt. Margir eru með forfallatryggingar í heimilistryggingum sínum og þá er hægt að kaupa forfallagjalf hjá viðkomandi flugfélagi og skal sú forfallatrygging greiðast fyrir útgáfu farseðla. Þeir sem vilja kaupaforfallagjald í gegnum Icelandair eða WOW air eru vinsamlegast beðnir um að láta starfsfólk Eldhúsferða – Cucina Travel vita áður en gengið er frá greiðslum. Þetta forfallagjald á aðeins við um þann hluta ferðarinnar er að fluginu snýr og gildir ekki fyrir staðfestingargjald eða nokkrar aðrar greiðslur til Eldhúsferða – Cucina Travel. Eldhúsferðir – Cucina Travel sjá ekki um endurgreiðslu vegna flugs komi til hennar. (Sjá heimasíðu viðkomandi flugfélags)
UPPLÝSINGAR UM FARÞEGA og FORSKRÁNING:
Þá þurfa upplýsingar um nöfn þátttakenda, kennitölur, símanúmer og netfang (ef þið eruð með netfang) að berast helst um leið og staðfestingargjald. Gæta skal að nöfn farþega séu í samræmi vegabréf. Skila þarf endanlegum nafnalista eigi síðar en 8 vikum fyrir komudag.
VEGABRÉF:
Athugið tímanlega að vegabréf sé í gildi. Gæta skal að nöfn farþega séu í samræmi vegabréf.
FORFALLAGJALD/SJÁLFSÁBYRGÐARGJALD:
Ferðaskrifstofan ráðleggur öllum sínum farþegum að verða sér út um forfallatryggingu hjá tryggingafélagi viðkomandi. Ætli viðkomandi sér að kaupa forfallatryggingu hjá tryggingafélagi þá þarf venjulega að kaupa hana innan 7 daga frá því að staðfestingargjaldið er greitt. Vegna flugs er oft hægt að kaupa forfallatryggingu fyrir þann hluta ferðarinnar er að fluginu snýr hjá viðkomandi flugfélagi, sú forfallatrygging á ekki við um aðra hluta ferðarinnar.
TRYGGINGAR:
Við hvetjum þá sem ferðast á okkar vegum að huga vel að tryggingum sínum. Hver og einn verður að sjá um sínar tryggingar og bera ábyrgð á að þær séu í lagi. Eldhúsferðir – Cucina Travel og starfsfólk ber ekki ábyrgð á því ef viðskiptavinur hefur sjálfur ekki kynnt sér skilmála tryggingafélaga og kreditkorta og hefur ekki tryggt sig á ferðum sínum.
Tryggingar eru mismunandi og er hér vakin athygli á nokkrum atriðum sem geta skipt máli. Ferðatryggingar fylgja yfirleitt ekki almennum kreditkortum og ekki heldur silfurkortum án fríðinda, en hins vegar silfurkortum með fríðindum, gullkortum og platínakortum. Þegar ferðatrygging fylgir kreditkorti er oft skilyrði að a.m.k. 50% ferðakostnaðar sé greiddur með kortinu. Forfallatrygging er líka innifalin í sumum fjölskyldutryggingum, en það er ekki algilt. Athugið að forfallatrygging er venjulega ekki þáttur í svonefndum ferðatryggingum sem tryggingafélögin bjóða upp á. Venjulega er hægt að kaupa sérstakar forfalla-/farseðlatryggingar hjá tryggingafélögunum. Vinsamlegast kynnið ykkur málið og skilmála hvers tryggingafélags fyrir sig.
Mælt er með að ferðast ávalt með Evrópska sjúkratryggingakortið á ykkur, hægt er að sækja um það á síðu Sjúkratrygginga (www.sjukra.is)
FARANGUR og VERMÆTI:
Ferðaskrifstofan ber ekki ábyrgð á skemmdum sem kunna að verða á farangri í leiguflugi eða í öðrum farartækjum svo sem rútum og öðrum farartækjum eða ef farangur berst farþega seint. Ferðaskrifstofan eða fararstjórar sem vinna á hennar vegum ber ekki ábyrgð á því ef farangur tapast. Farþegum er frjálst að skilja farangur sinn eftir í rútum eða á þeim stöðum sem stoppað er á, en það er ávallt á þeirra eigin ábyrgð. Sé brotist inn í rútur eða farartæki ber ferðaskrifstofa eða fararstjóri ekki ábyrgð á því.
Við mælum með að viðskiptavinir geymi ekki peninga né önnur verðmæti á herbergjum eða skilji þau eftir í rútum eða öðrum farartækjum. Hvorki ferðaskrifstofan, fararstjórar, gististaðir né fyrirtæki farartækja eru ábyrg ef verðmæti tapast.
Við mælum því með að fólk sé með farangurstryggingu.
SÉRFERÐIR:
Vinsamlegast bókið í valferðir 4 vikum fyrir komudag á netfangið sala@eldhusferdir.is eða hjá þeim aðila sem heldur utan um nöfn hópsins sem safnar þá þeim bókunum og sendir á þetta netfang. Bókunin er bindandi nema látið sé vita viku fyrir ef viðkomandi kemst ekki í ferðina. Ferðaskrifstofu er heimilt að aflýsa ferð ef í ljós kemur að þátttaka er ekki næg og eins að færa til eða fella niður sérferðir gerist þess þörf t.d. vegna veðurs eða annarra óviðráðanlegra aðstæðna.
FRAMLENGING Á FERÐ:
Hægt er að framlengja ferð, sérstaklega ef flogið er með Icelandair. Skv. hópaskilmálum Icelandair þá eru hópfargjöld bundin við að hópurinn ferðist saman á útleið og heimleið, en þó er heimilt að breyta heimleið gegn gjaldi (sjá verðskrá Icelandair). Ef erlend flugfélög eru með í bókun eru engar breytingar leyfðar á ferðatilhögun hópsins. Fari einhver út á undan hópnum verður viðkomandi, á eiginkostnað og ábyrgð, að koma sér á þann stað er hópurinn hittist á. Þó getur viðkomandi gert þessar bókanir í gengum þjónustufulltrúa hópsins hjá Icelandair (sjá verðskrá Icelandair).
Eldhúsferðir – Cucina Travel getur einnig annast breytingar á flugi, bókun á bílaleigubílum, lestarferðum og öðrum ferðum, ásamt bókun á hótelum gegn breytingar- og þjónustugjaldi. Sé ætlunin að framlengja gistinguna á því hóteli sem hópurinn gistir á greiðist ekkert breytingagjald. (Sjá Almenna ferðaskilmála S.A.F. þjónustu- og breytingargjöld). Vinsamlegast látið vita ef þið hafið framlengt ferðina og verðið ekki með í rútunni á flugvöllinn.
ÞJÓNUSTU- OG BREYTINGAGJÖLD
Óski farþegi eftir annarri þjónustu en þeirri sem innifalin er í ferðinni t.d. breytingum á ferð, bókun á öðrum hótelum, bílaleigubílum o.s.frv. þarf að greiða fyrir hana þjónustugjald að lágmark 3.500 kr.
Verð á breytingu á flugi fer eftir verðskrá viðkomandi flugfélags, Eldhúsferðir taka 500 kr. fyrir hverja breytingu á flugi. Aðrir þjónustuaðilar geta líka mögulega sett á breytingagjald.
KYNNIÐ YKKUR SKILMÁLA ELDHÚSFERÐA – CUCINA TRAVEL:
Greiðsla staðfestingargjalds eða ferðarinnar allrar í heild gildir sem samþykki á skilmálum Eldhúsferða - Cucina Travel. Kynnið ykkur skilmálana vel áður en gengið er frá greiðslum.
1. UPPLÝSINGAR OG PÖNTUN
Í ferðabæklingi, verðskrá og auglýsingum ferðaskrifstofu skal tilgreina verð og allar upplýsingar sem ferðina snerta á greinargóðan og nákvæman hátt. Pöntun á ferð er bindandi samningur fyrir farþega og ferðaskrifstofu, en þó því aðeins að ferðaskrifstofa hafi staðfest pöntun skriflega og farþegi hafi á réttum tíma greitt tilskilið staðfestingargjald, þar sem þess er óskað. Ef farþegi hefur sett fram sérstakar kröfur um þjónustu skal það koma fram í samningi aðila.
2. GREIÐSLUR
Áætlað verð ferðar, eins og það er á greiðsludegi, skal greitt samkvæmt auglýstum skilmálum hverrar einstakrar ferðaskrifstofu. Ferðaskrifstofu er heimilt að óska eftir innborgun þegar pöntun er staðfest. Slíkt staðfestingargjald endurgreiðist ekki þó farþegi afturkalli pöntun eða ef ferðaskrifstofa riftir samningi vegna vanefnda farþega. Þegar fargjaldareglur flugfélaga eða annarra flutningsaðila ganga lengra hvað greiðslur varðar en almennir skilmálar SAF gildir sú regla er gengur lengra.
3. VERÐ OG VERÐBREYTINGAR
Uppgefið áætlað verð við staðfestingu pöntunar kann að taka breytingum ef breyting verður á einum eða fleiri eftirfarandi verðmyndunarþátta:
Flutningskostnaði, þar með töldum eldsneytiskostnaði. -
Sköttum eða gjöldum fyrir tiltekna þjónustu s.s. lendingargjöldum eða gjöldum fyrir að fara um borð eða frá borði í höfnum eða á flugvöllum.
Gengi þess gjaldmiðils sem á við um tiltekna ferð.
Ekki má breyta umsömdu verði síðustu 20 dagana áður en ferð hefst.
Sérstakt þjónustugjald er innheimt fyrir þjónustu sem er ekki innifalin í verði ferðar s.s. sérpöntun á bílaleigubíl eða gistingu o.fl.
4. AFTURKÖLLUN EÐA BREYTINGAR Á PÖNTUN
Heimilt er að afturkalla farpöntun, án kostnaðar, sé það gert innan viku frá því að pöntun var gerð enda séu að lágmarki 5 vikur í brottför. Berist afpöntun síðar, en þó fjórum vikum fyrir brottför, áskilur ferðaskrifstofan sér rétt til að halda staðfestingargjaldinu eftir. Sé pöntun afturkölluð með minna en 28 daga en meira en 14 daga fyrirvara heldur ferðaskrifstofan eftir 50% af verði ferðarinnar. Berist afpöntun með skemmra en 14 daga fyrirvara á ferðaskrifstofan kröfu á 75% fargjaldsins, en sé fyrirvarinn aðeins fjórir virkir dagar eða skemmri er allt fargjaldið óafturkræft.
Ef þátttakandi mætir ekki til brottfarar á réttum tíma eða getur ekki hafið ferðina vegna skorts á gildum ferðaskilríkjum, svo sem vegabréfi, áritun þess, vottorðs vegna ónæmisaðgerða eða af öðrum ástæðum, á hann ekki rétt á endurgreiðslu ferðarinnar.
Farþega er ávallt heimilt að afturkalla farpöntun vegna stríðsaðgerða, lífshættulegra smitsjúkdóma eða annarra hliðstæðra tilvika sem hafa afgerandi áhrif á framkvæmd ferðar þegar 14 dagar eða færri eru til brottfarar. Í slíkum tilvikum ber ferðaskrifstofu að endurgreiða allt fargjaldið að frádregnu staðfestingargjaldi. Þetta gildir þó ekki ef farþegi hefði mátt sjá fyrir um ofangreinda atburði og ástand er samningur var gerður. Heimilt er að breyta dagsetningu ferðar ef breytingin er gerð með meira en mánaðar fyrirvara. Sé það gert eftir þann tíma skoðast það sem afpöntun og ný pöntun og áskilur ferðaskrifstofan sér rétt til greiðslu samkvæmt því, sbr. afpöntunarskilmála hér að ofan.
Breyting á áfangastað skoðast alltaf sem afpöntun og ný pöntun. Fyrir aðrar breytingar en að ofan greinir innheimtist sérstakt breytingagjald.
5. FRAMSAL BÓKUNAR
Farþegi getur framselt bókun sína til aðila sem fullnægir þátttökuskilyrðum. Skal farþegi sem og framsalshafi tilkynna ferðaskrifstofu skriflega strax um slíkt framsal. Framseljandi ferðar og framsalshafi eru þá sameiginlega og hvor í sínu lagi ábyrgir gagnvart ferðaskrifstofu og því er varðar greiðslu á eftirstöðvum og öllum aukakostnaði er kann að leiða af slíku framsali.
Óheimilt er að framselja ferð eftir að farseðill hefur verið gefinn út eða í öðrum þeim tilvikum þar sem þeir aðilar sem selja þjónustu í ferðina hafa sett ákveðin skilyrði þannig að það sé ekki í valdi ferðaskrifstofu að breyta þeim.
6. AFLÝSING OG BREYTINGAR Á FERÐAÁÆTLUN
Ferðaskrifstofa ber enga ábyrgð á ófyrirsjáanlegum aðstæðum, sem ferðaskrifstofa fær engu um ráðið og hefði ekki getað komið í veg fyrir afleiðingar þeirra. Í slíkum tilvikum er ferðaskrifstofu heimilt að breyta eða aflýsa ferðinni með öllu, enda verði farþegum tilkynnt þar um tafarlaust.
Geri ferðaskrifstofa breytingar á ferð áður en hún hefst skal tilkynna það farþega svo fljótt sem unnt er. Sé um verulega breytingu að ræða ber farþega að tilkynna ferðaskrifstofu eins fljótt og unnt er hvort hann óski eftir að rifta samningnum eða gera viðbótarsamning er tilgreini þær breytingar sem gerðar eru á upphaflega samningnum og áhrif þeirra á verð og önnur kjör.
Sé ferð aflýst, eða farþegi riftir samningi þegar um verulega breytingu er að ræða á ferð áður en hún hefst, á farþegi rétt á að fá að fullu endurgreiðslu eða taka í staðinn aðra ferð sambærilega að gæðum eða betri ef ferðaskrifstofan getur boðið slík skipti. Ef ferðin sem boðin er í staðinn er ódýrari fær farkaupi verðmismuninn endurgreiddan. Ef ferðin er dýrari greiðir farkaupi mismuninn.
Tímasetningar sem gefnar eru upp við pöntun ferðar eru áætlaðar og geta breyst.
Ferðaskrifstofu er heimilt að aflýsa ferð ef í ljós kemur að þátttaka er ekki næg, enda hafi í kynningu á ferðinni verið kráfist ákveðins lágmarksfjölda farþega. Tilkynna ber þátttakendum um aflýsingu bréflega eigi síðar en þremur vikum fyrir áætlaðan brottfarardag. Ferðum sem vara í eina viku eða skemur má þó aflýsa með tveggja vikna fyrirvara.
7. SKYLDUR ÞÁTTTAKENDA
Farþegar eru skuldbundnir að hlíta fyrirmælum fararstjóra eða starfsfólks þeirra aðila er ferðaskrifstofa skiptir við. Farþegi er skuldbundinn að hlíta lögum og reglum opinberra aðila í þeim löndum sem hann ferðast um, taka tillit til samferðarmanna sinna og hlíta þeim reglum er gilda á flutningatækjum, áningarstöðum (t.d. flughöfnum), gisti- og matsölustöðum o.s.frv., enda ber hann ábyrgð á tjóni sem hann kann að valda með framkomu sinni. Farþegi sem mætir ekki á brottfararstað (s.s. flugstöð) á réttum tíma hefur fyrirgert rétti sínum til bóta ef hann af þeim sökum verður af pöntuðu fari. Brjóti farþegi af sér í þessum efnum eða gefi við upphaf ferðar tilefni til þess að ætla að hann
verði samferðafólki sínu til ama með framkomu sinni, er ferðaskrifstofu heimilt að hindra hann í að hefja ferð sína eða halda henni áfram og verður hann þá að ljúka henni á sinn kostnað, án endurkröfuréttar á hendur ferðaskrifstofu.
Ferðaskrifstofu er heimilt að hafna viðskiptum við fólk vegna fyrri brota svo og við þá sem ferðaskrifstofa telur ekki færa til að ferðast vegna sjúkdóma o.þ.h.
8. TAKMÖRKUN ÁBYRGÐAR OG SKAÐABÆTUR
Þátttakendur eiga þess kost að kaupa á sinn kostnað ferða-, slysa/sjúkra- og farangurstryggingu fyrir milligöngu ferðaskrifstofu eða hjá tryggingafélögum. Einnig forfallatryggingu/gjald þar sem slík vernd er ekki innifalin í verði ferðar. Ferðaskrifstofa áskilur sér jafnframt rétt til að takmarka skaðabætur í samræmi við takmarkanir sem kveðið er á um í landslögum eða alþjóðasamningum.
Ferðaskrifstofa gerir ráð fyrir að þátttakendur í hópferðum séu heilir heilsu þannig að ekki sé hætta á að þeir valdi öðrum óþægindum eða tefji ferðina vegna sjúkdóms. Ef farþegi veikist í hópferð ber hann sjálfur ábyrgð á kostnaði sem af því kann að hljótast sem og kostnaði við heimferðina. Farþegi á ekki rétt til endurgreiðslu þó hann ljúki ekki ferð af þessum ástæðum eða öðrum, sem ferðaskrifstofunni verður ekki um kennt.
Hugsanlegar kvartanir vegna ferðarinnar skulu berast fararstjóra strax og skal skrifleg kvörtun síðan berast ferðaskrifstofu eins fljótt og við verður komið og í síðasta lagi innan mánaðar frá því viðkomandi ferð lauk. Að öðrum kosti verða hugsanlegar bótakröfur ekki teknar til greina.
Verði farþegi fyrir meiðslum eða eignatjóni vegna þess að ferð er ófullnægjandi á hann rétt á skaðabótum nema því aðeins að:
• vanefnd á framkvæmd samningsins verði ekki rakin til vanrækslu ferðaskrifstofu eða annars þjónustuaðila
• af því að vanefndirnar eru sök farþega eða þriðja aðila sem ekki tengist þeirri þjónustu sem samið var um og eru ófyrirsjáanlegar eða óhjákvæmilegar eða
• vanefndirnar eru vegna óviðráðanlegra aðstæðna eða atburðar sem veitandi þjónustunnar gat með engu móti séð fyrir eða komið í veg fyrir.
Ef ferð fullnægir ekki ákvæðum samnings getur farþegi krafist þess að ráðin sé bót á nema það hafi í för með sér óeðlilegan kostnað eða veruleg óþægindi fyrir ferðaskrifstofu. Ef ekki er hægt að bæta úr því sem á vantar eða einungis með lakari þjónustu á farþegi rétt á verðlækkun á ferðinni sem jafngildir mismuninum á þeirri þjónustu sem samið var um og þeirri sem veitt er.
Skilmálar þessir eiga alltaf við nema um annað sé samið sérstaklega og skal vera um það skriflegt samkomulag. Eldhúsferðir – Cucina Travel áskilja sér rétt til að breyta skilmálum þessum án fyrirvara.
Með fyrirvara um prentvillur.