Hagnýtar upplýsingar áður en ferð hefst :
Staðfesting - staðfestingargjald:Tilkynna þarf þátttöku til kórsins. Ræðið við Þór Þráinsson og/eða Karl Sigurðsson.
Karl Sigurðsson, gjaldkeri, tekur við staðfestingargreiðslum sem eru 30.000,- kr á farþega.
Ferðaskrifstofa:
Eldhúsferðir (EF) eru skipuleggjendur ferðarinnar.
Hægt er að senda fyrirspurnir á netfangið sala@eldhusferdir.is. Skrifið þá í efni/subject póstsins; KaKó + lýsing á erindinu.
Fararstjórar okkar verða: Jóna Fanney Svavarsdóttir og Erlendur Þór Elvarsson.
Ferðanefnd:
Þór Þráinsson: 845-4255, thor@leiguibudir.is
Guðmundur Borgþórsson: 898-8237, mundi@hive.is
Jóhannes Kristjánsson: 773-8877, johannesk@simnet.is
Greiðslur: Karl Sigurðsson, gjaldkeri: 895 6697, karl.sigurdsson@vmst.is
Flug:
FI532 - Frá Keflavík klukkan 07:20 fimmtudaginn 21. september
FI533 - Frá Munchen klukkan 14:05 fimmtudaginn 28. september
ATH! Greiða þarf fyrir flugið í síðasta lagi 2. júní 2017 - Sjá nánari upplýsingar um frágang greiðslu hér
Tryggingar:
Athugið tryggingar ykkar hjá kortafyrirækjum (VISA, Mastercard, American Express).
Evrópska sjúkratryggingakortið er nauðsynlegt fyrir alla ferðafélaga. Ef þið eruð ekki með þannig kort eða ef það er útrunnið þá þurfið þið að sækja um það hjá réttindagátt Sjúkratrygginga Íslands. Sótt er um kortið á netinu og það er sent heim. Gangið frá því a.m.k. tveimur vikum fyrir brottför.
Sækja um Evrópska sjúkratryggingakortið
Greiðslur fara þannig fram:
Staðfestingargjald greiðist til kórsins, kr. 30.000,- á mann.
Greiða þarf til Eldhúsferða kr, 141.000,- á mann (staðfestingargjald er til frádráttar => 111.000,- kr).
Einbýli kostar aukalega 25.000,- kr
Greiðsla þarf að hafa borist Eldhúsferðum 8 vikum fyrir brottför. Kynnið ykkur greiðsluskilmála EF hér.
Hver og einn þarf að ganga frá greiðslu 50.000,- kr til Icelandair fyrir fluginu. Flugið hefur verið pantað.
Hilda Ólafsdóttir í hópadeild Icelandair sér um hópinn, henni hefur verið sendur nafnalisti og opnað hefur verið fyrir greiðslur sem þurfa að berast í síðasta lagi 6 vikum fyrir brottför.
Ef óskir eru um breytingar á fluginu heim þarf hver og einn að gera það gegnum Hildu.
Gott væri að senda EF og Þór hjá ferðanefnd upplýsingar ef breyting er gerð á heimflugi.
Orlofsávísanir, vildarpunktar, gjafabréf og points gilda sem greiðsla.
Ferðalýsing:
Hér má sjá ferðalýsingu ásamt miklu magni af upplýsingum um ferðina, staðina sem við heimsækjum og almennar upplýsingar um nærumhverfið okkar meðan á dvölinni stendur.
Hér eru hagnýtar upplýsingar fyrir ferðalagið.
Ferðanefnd mun setja meira efni hér inn þegar nær dregur og ýmis mál fara að skýrast t.d. hvar tónleikarnir verða. Nú er í athugun salur tónlistarháskólans í Bolzano og kirkja í nágranabæ, eins er verið að ath. með að fá á lokakvöldinu írskan pöbb til afnota fyrir lokapartýið o.fl., o.fl.
Sérferðir:
Ferðir sem eru innifaldar í verði ferðar þarf ekki að skrá sig sérstaklega í.
Aðrar sérferðir þarf að skrá sig sérstaklega í og greiða til kórsins 8 vikum fyrir brottför.
Ferðafélagar:
Ef þú hefur áhuga á að vita hverjir koma með smelltu hér :)