Hér fyrir neðan er hlekkur á notendaleiðbeiningar á íslensku frá söluaðila
Hér fyrir neðan er að finna leiðbeiningar fyrir uppsettningu og notkun frá framleiðanda með íslenskri þýðingu.
Tékklisti sem þarf að athuga áður en byrjað er að nota búnaðinn
1. Snjallsíminn þarf að vera tengdur við 2.4Ghz WIFI nettengingu
2. Sækjið appið "eWelink App" úr App store (apple) eða Google Play (android), báðar þjónusturnar þarnast þess að eiga aðgang og vera skráður inn á hann.
3. Gæta þarf þess að þegar búnaðurinn er paraður við snjalltækið að bæði tækinn séu innan drægni routersins.
4. Búnaðurinn styður eingöngu við 2.4Ghz nettengingar. Passið vel að hann sé ekki tengur við 5Ghz eða blandaða tengingu. (Hægt er að athuga hvaða gerð af WIFI merki netbeinirinn sendir út í stillingum á beininum)
5. Sláið inn rétt WIFI lykilorð og passið að lykilorðið innihaldi ekki neina sérstafi (Þessu er hægt að breyta í stillingum á netbeini.
Eftir að búnaðurinn er tengdur ætti að koma rautt ljós á gaumljósið og þá er hægt að halda inni takkana í 10 sekúndur til að koma búnaðnum í pörunarham og hann blikkar gaumljósinu til að gefa það til kynna og þá er hægt að opna appið til að tengja sig við búnaðinn.
Skref 1. Ef búnaðurinn er í pörunarham þá er nýtt á "Next" annars skal halda takkanum inni í 10 sek eða þangað til að ljósið byrjarar að blikka og þá má fara í næsta skref.
Skref 2. Veljið WIFI tenginguna sem búnaðurinn á að tengjast við og passið að snjalltækið sé tengt við sömu tengingu. Sláið inn lykilorðið fyrir tenginguna og nýtið á "Next" þegar appið segir að búnaðurinn hafi ná að tengjast netinu.
Skref 3. Bíðið eftir að appið sýni að búnaðurinn sýni að búnaðurinn hafi tengst appinu og ýtið þá á "Next".
Skref 4. Gefið búnaðinum nafn (mælt er með skýrum nöfnum sem auðvelda notkun t.d. ofnar stofu) og veljið "Complete". Búnaðurinn er núna tilbúinn til notkunar í appinu.
Þegar búið er að tengja búnaðinn við appið eru eftir farandi möguleikar í boði.
Kveikja og slökkva á greininni.
Deila búnaðnum til annara notanda sem hafa appið til að þeir geti líka stýrt búnaðnum.
Tíma stilling til að kveikja/slökkva á greininni eftir ákveðinn tíma.
Dagatals stilling þar sem hægt er að stýra hvenær búnaðurinn kveikir/slekkur miða við tíma dags og dagsettningar.