Hér er farið yfir byggingarsögu sumarbústaðsins mánuð fyrir mánuð.
11.01.2023 var fyrsti tíminn okkar sem við unnum í bústaðnum. Það var farið og skoðað ástandið á bústaðnum og skipuleggja okkur aðeins, eftir það fórum við niður í kennslustofu og gerðum magntöku á öllu því efni sem við myndum þurfa í verkið.
18.01.2023 var byrjað á að leggja veggdósir í húsið. Veggir húsins voru þykkir og þurftum við þá að nota stóla fyrir dósirnar annarsvega 60 og hinsvegar 90, en á útveggjum hússins þurfti ekki stóla heldur höfðu smiðirnir sett undirstöðu fyrir veggdósirnar inní veggina.
25.01.2023 var dagurinn sem við kláruðum að setja dósir og byrjuðum að leggja lagnir frá veggdósunum og upp í loft, einnig voru lagðar lagnir á milli dósa. Við náðum að setja eina loftadós og tengja í hana þennan tíma.
01.02.2023 byrjuðum við að setja loftadósir upp og tengja á milli þeirra, einnig voru gerðar þagfæringar á lögnum sem voru ekki í lagi frá síðasta tíma. Það var líka byrjað á raflagnateikningunni. Allar lagnir frá veggdósum og upp að lofti voru kláraðar í dag.
08.02.2023 var byrjað á að leggja vegg- og loftdósir uppi á annari hæð. Klárað var að setja upp loftadósir og leggja frá dósunum og að töflunni. Svo var sett töfluna upp og öryggjunum smellt í og byrjað á að víra hana.
15.02.2023 var haldið áfram með efri hæðina og klárað að leggja allar dósir og rör á milli dósa. Smáspennutaflan fór upp og lagt voru lagnir að henni. Byrjað var á að draga víra í á milli dósa og upp í lofta dós en ekki að töflu.
22.02.2023 var teikningin komin á skrið og var þá byrjað að loka veggjum svo við fórum yfir hvort allar dósir væru komnar upp. Minniháttar lagfæringar og yfirferð þennan dag.
01.03.2023 á þessum degi unnum við að öðrum verkefnum í skólanum, en það fóru tveir nemendur aftur yfir allt húsið í lok tímans og fundu nokkrar villur. Það vantaði einn tengil og tengidós fyrir ljós.
15.03.2023 var líka tekinn í að vinna annað verkefni í skólanum og einnig var kennarinn ekki við.
22.03.2023 var dagurinn sem við fórum aftur að vinna í bústaðnum. Þar þurti að laga villurnar sem fundust í byrjun mánaðar og allskonar minni verkefni. Það var byrjað að draga víra frá dósum og í töfluna, einnig voru dregnir út netstrengir að smáspennutöflunni. Í lok tímans var gerður innkaupalisti fyrir innlagnarefni.
29.03.2023 var byrjað að setja innlagnar efni í húsið og tengja saman í loftadósum, svo í lok tímans voru settir upp rússar fyrir vinnu lýsingu.
12.04.2023 var klárað að efna allt inn, setja upp tengla og nettengla og tengja þá. Þetta var dagurinn sem rafmagnstaflan kláraðist og sett voru lok á loftadósir þar sem rússarnir voru.
19.04.2023 var klárað að tengja smáspennutöflu og gerðar mælingar á tenglum. Þennan dag voru teikningarnar kláraðar.
26.04.2023 var dagurinn sem var nýttur í að leggja lokahönd á verkefnið, taflan var merkt og yfirfarin. Svo í lok tímans var farið yfir allar greinar og mælt að minnsta kosti einn tengil á hverri grein. Þetta var síðasti dagurinn okkar í sumarbústaðnum.
Myndasafn
Hlekkurinn hér fyrir neðan er myndasafn af myndum sem nemendur tóku og settu inn. Ekki er mælt með því að treysta dagsettninum upp á hár en þetta eru þó allt myndir frá sumarbústaðnum.
Mælingar
Það var tekin úttektarmæling á nettenglum sem stóðst allar kröfur.
Allir tenglar sem komnir voru upp við verklok hjá VMA voru mældir og lagfræðir eftir þörfum og eru rétt tengdir og starfandi.
Ekki var hægt að taka útektar mælingu á töflu þar sem þær eru þýðingarlausar eftir að skipt verður um stofn og þarf því að gera það eftir að hún er straumfædd með varanlegum stofni en öll virkni var mæld sem hægt var á tímabundna stofninum og ekkert athugavert fannst.