Sýnishorn úr lokaverkefnum nemenda í grunnáfanga í leikjahönnun (TÖHÖ2LH05) haustið 2025. Nemendur fengu frjálsar hendur til að þróa sína eigin leikjahugmynd og búa til frumgerð út frá þeirri hugmynd. Hægt er að prófa prótótýpurnar með því að smella á leikjatitlana hér fyrir neðan.
Leikir sem merktir eru með 🌐 er hægt að spila beint í gegnum vafra. Nauðsynlegt er að niðurhala leikjum sem eru merktir 🖥️. Hér er hægt að nálgast leiðbeiningar um hvernig á að niðurhala leikjum. Leikirnir virka ekki í símum, aðeins tölvum.
Verk eftir eftirfarandi nemendur: Birnir, Eldon Ægir, Emilía Guðlaug, Guðbrandur Martin, Hasanain Saad, Heiðdís María, Hörður Kári, Jason Ýmir, Katrín Mey, Killian Bjartur, Kristinn Andri, Lilja Sóley, Malini, Rakel Anna, Tawfik og Willam Rós.
Kennari er Bjarki Þór Jónsson
Veistu hvað má fara í brúnu tunnuna? Sannaðu það!
Á itch.io er að finna eldri lokaverkefni nemenda og er hægt að skoða þau með því að smella hér.
Fjölbrautaskólinn við Ármúla býður upp á fjölbreytt úrval tölvuleikjaáfanga undanfarin. Má þar nefna áfanga í leikjahönnun, rafíþróttum, tölvuleikjafræði og tölvuleikjasögu, tölvuleikjum í þrívídd og yndisspilun. Úrval áfanga er breytilegt eftir önnum. Nánari upplýsingar um áfanga má finna hér.
Að lokum, hér koma nokkrar áhugaverðar staðreyndir um tölvuleiki.
Vissir þú að...
2/3 Íslendinga spila tölvuleiki (Vísir)
meðalaldur tölvuleikjaspilara í Evrópu er 31 árs (Video Games Europe)
kynjahlutfall tölvuleikjaspilara er nokkuð jafnt (Statista)
á Íslandi starfa yfir 20 tölvuleikjafyrirtæki (IGI)
tölvuleikjaiðnaðurinn hefur vaxið gríðarlega hratt og skilar inn meiri hagnaði en tónlistar- og kvikmyndabransinn til samans (BBC og Forbes)