Skógræktarfélag Hveragerðis var stofnað 1950
Skógræktarfélag Hveragerðis var stofnað sunnudaginn 15. janúar árið 1950.
Fyrsti formaður félagsins var Snorri Tryggvason, gjaldkeri Ólafur Steinsson og ritari Kristmann Guðmundsson. Meðstjórnendur voru Ragnar Ásgeirsson og Hróðmar Sigurðsson.
Þess má geta að Gunnar Benediktsson og Jóhannes úr Kötlum fengu einnig hlutverk sem endurskoðandi og varaendurskoðandi í hinu nýstofnaða félagi. Margir fleiri merkir einstaklingar komu að félaginu þegar frá upphafi sem of langt er að telja hér.
Fundargerðarbók félagsins er varðveitt frá stofnun þess.
Frá upphafi hefur suðurhlið Hamarsins verið aðal áherslusvæði félagsins en jafnframt hefur m.a. verið plantað í svæði við gamla vatnstankinn austan Hamarsins og í Dalnum norðan hans sem og á árhólmum Varmár neðan Hólmabrúnar.