Skógræktarfélag Hveragerðis var stofnað 15. janúar 1950.
Skógræktarsvæði félagsins eru kringum Hamarinn, á Vorsabæjarvöllum og í Selhæðum norðan Hamarsins. Skógræktarsamningur á milli Hveragerðisbæjar, Skógræktarfélags Hveragerðis og Skógræktarfélags Íslands var gerður 1994, og gildir hann á um 46 ha. svæði á Vorsabæjarvöllum og Selhæðum.