Barnabókin mín
Í þessu verkefni áttu að skrifa stutta barnabók.
Þú átt að búa til persónur og söguþráð, myndskreyta og gera bókina áhugaverða fyrir lesendur á aldrinum 6 til 8 ára.
Verkefnaskil: Rafbók unnin í Book Creator. Þú átt að skrifa texta og myndskreyta og getur ef þú vilt nýtt þér tæknina til að setja inn hljóð og/eða myndbrot.
Barnabók og uppkasti er skilað inn í skilahólf á Teams.
Undirbúningur - lestu:
Neistar - bls. 60 - 63 á https://vefir.mms.is/flettibaekur/namsefni/neistar_rafbok/
Skipulag:
Gerðu uppkast að bókinni:
Söguþráður
Persónusköpun
Umhverfi
Tími
Skrifaðu og settu upp bókina:
Þú hefur að mestu frjálsar hendur hér en þú verður að gera forsíðu á bókina og hafa hana að lágmarki 8 til 10 blaðsíður.
![](https://www.google.com/images/icons/product/drive-32.png)
Námsmat
Þú kemur í námssamtal við kennara til að láta meta heimaverkefnið þitt. Hér við hliðina sérðu hæfniviðmið og viðmið um árangur fyrir verkefnið.