Allt í köku
Í þessu verkefni færðu frelsi í skapandi skilum.
Þú getur t.d. búið til myndband, myndaseríu, leiðbeiningarbækling, hlaðvarp eða bara það sem þér dettur í hug.
Verkefnaskil: Afurð með frjálsri aðferð. Skilað inn í skilahólf á Teams.
Veldu þér eina af eftirfarandi uppskriftum og bakaðu.
Súkkulaðibitasmákökur - Vegan Súkkulaðibitasmákökurnar sem klikka aldrei
Súkkulaðibitakökur - Eva Laufey Amerískar súkkulaðibitakökur
Í afurðinni þarftu að svara eftirfarandi spurningum:
Hvaðan kemur smákökubakstur til Íslands?
Hvaða hefðir tengjast smákökubakstri á Íslandi?
Hvaða smákökur eru í uppáhaldi hjá þér?
Hvaða smákökur eru í uppáhaldi hjá tveimur öðrum í þinni fjölskyldu?
Hvaða mælieiningar vannstu með við baksturinn?
Hvaða áhöld notaðir þú við baksturinn?
![](https://www.google.com/images/icons/product/drive-32.png)
Námsmat
Þú kemur í námssamtal við kennara til að láta meta heimaverkefnið þitt. Hér við hliðina sérðu hæfniviðmið og viðmið um árangur fyrir verkefnið.