Kvenskörungar verkefni
Kveikja | Í upphafi verkefnavinnu
Gegnum tíðina hafa konur verið áberandi í stjórnmálum. Skoðið myndbandið um áberandi konur í stjórnmálum um allan heim.
Verkefnalýsing | Það sem á að gera
Þú ætlar að veljið eina konu sem hefur verið brautryðjandi fyrir stjórnmál á Íslandi og búa til fræðslumyndband um hana.
Segið frá henni á myndrænan hátt með að gera myndband um hana.
Segið frá hver hún var og hvað hún gerði til að vera brautryðjandi fyrir konur í stjórnmálum?
Segið frá hennar ævi.
Farðu inn á Íslendingabók og athuga hvort hún sé skyld þér og hversu mikið.
Segðu frá hvort að hún hafi lent í mótlæti í sinni baráttu og hvað það var sem hún vildi hafa áhrif á.
Hvað á að koma fram í verkefninu.
Ég segi frá því hvenær hún fæddist
Ég segi frá því hvar hún bjó
Ég segi frá því hvort að hún sé skyld mér og í hvaða lið
Ég segi frá hverju hún barðist fyrir
Ég segi frá því hvort að hún hafi orðið fyrir mótlæti og hvernig mótlæti
![](https://www.google.com/images/icons/product/drive-32.png)
Námsmat
Þú kemur í námssamtal við kennara til að láta meta heimaverkefnið þitt. Hér við hliðina sérðu hæfniviðmið og viðmið um árangur fyrir verkefnið.
Verkefnið var búið til af kennurum í Hörðuvallaskóla og sett upp fyrir Skapandi heimanám í Stapaskóla af Guðrúnu Sigríði