Bíókvöld 1
Tímarnir breytast og mennirnir með á einhvern veginn alltaf við.
Í þessu verkefni ætlar þú að kafa ofan í unglingamenningu eins og hún birtist á hvíta tjaldinu. Þú ætlar að velja gamla unglingamynd (allavega 20 ára gamla) og horfa á með foreldri eða forráðamanni. Þetta verður að vera mynd sem fullorðni einstaklingurinn sem þú ætlar að horfa á með þekkir frá sínum unglingsárum og tengir við á einhvern hátt.
Að venju er frjáls skapandi skil á þessu verkefni t.d. er hægt að setja það upp sem hlaðvarpsviðtal við þann sem horfir á myndina með þér, myndband þar sem klippur úr myndinni koma inn í, glærur í Canva eða Power point eða hvað sem þér dettur í hug.
Verkefninu er skilað til kennara í námssamtali.
Verkefnið er:
velja bíómynd sem foreldri eða forráðamaður tengir við og er til í að horfa á með þér og hjálpa við verkefnið.
segja frá myndinni í stuttu máli á íslensku (munnlega eða skriflega eftir því hvernig verkefni er skilað).
að finna 2 - 3 hluti sem unglingar á tíma þessarar bíómyndar voru að glíma við sem á ekki við unglinga í dag. Lýsa því hvernig þessir hlutir eru öðruvísi í dag.
að finna 2 - 3 hluti sem unglingar í dag glíma við sem á ekki við um unglinga á þessum tíma. Lýsa því hvernig þessir hlutir eru öðruvísi í dag.
![](https://www.google.com/images/icons/product/drive-32.png)
Námsmat
Þú kemur í námssamtal við kennara til að láta meta heimaverkefnið þitt. Hér við hliðina sérðu hæfniviðmið og viðmið um árangur fyrir verkefnið.