Brjálaður bakstur
Í þessu verkefni færðu frelsi í skapandi skilum.
Þú getur t.d. búið til myndband, myndaseríu, leiðbeiningarbækling, hlaðvarp eða bara það sem þér dettur í hug.
Verkefnaskil: Afurð með frjálsri aðferð - skilað til kennara í námssamtali.
Veldu þér eina af eftirfarandi uppskriftum og bakaðu.
Súkkulaðibitasmákökur - Vegan Súkkulaðibitasmákökurnar sem klikka aldrei
Súkkulaðibitakökur - Eva Laufey Amerískar súkkulaðibitakökur
Í afurðinni þarftu að svara eftirfarandi spurningum:
Hvenær er talið að smákökubakstur hafi byrjað á Íslandi?
Hvaða hefðir tengjast smákökubakstri á Íslandi?
Hvaða smákökur eru í uppáhaldi hjá þér?
Hvaða smákökur eru í uppáhaldi hjá tveimur öðrum í þinni fjölskyldu?
Hvaða mælieiningar vannstu með við baksturinn?
Hvaða áhöld notaðir þú við baksturinn?
![](https://www.google.com/images/icons/product/drive-32.png)
Námsmat
Þú kemur í námssamtal við kennara til að láta meta heimaverkefnið þitt. Hér við hliðina sérðu hæfniviðmið og viðmið um árangur fyrir verkefnið.
Verkefnið var búið til af Heiðu Björgu Árnadóttur og sett upp fyrir Skapandi heimanám í Stapaskóla í september 2023.