Í þessu verkefni áttu að skrifa stutta barnabók fyrir yngra systkini, yngra frændsystkini eða ef þú ert að passa barn á aldrinum 4 til 8 ára máttu líka nýta það.
Þú átt að búa til persónur og söguþráð, myndskreyta og gera bókina áhugaverða fyrir lesendur á aldrinum 4 til 8 ára.
Verkefnaskil: Rafbók unnin í Book Creator. Þú átt að skrifa texta og myndskreyta og getur ef þú vilt nýtt þér tæknina til að setja inn hljóð og/eða myndbrot. Farðu til Heiðu kennara og fáðu aðgang að Book creator áður en þú byrjar.
Barnabók og uppkasti er skilað til kennara í námssamtali.
Undirbúningur - lestu:
Neistar - bls. 60 - 63 á https://vefir.mms.is/flettibaekur/namsefni/neistar_rafbok/
Undirbúningur - viðtal:
Taktu viðtal við barn á aldrinum 4 - 8 ára (systkini, frændsystkini eða barn sem þú ert að passa).
Spurðu barnið t.d. út í áhugamál, hvernig bækur því finnst skemmtilegast að lesa/heyra, hvort það hafi gaman af myndum í bókum eða ekki og bara það sem þér dettur í hug að spyrja um áður en þú hefst handa.
Skipulag:
Áður en þú byrjar að skrifa bókina þá áttu að gera uppkast að bókinni:
Söguþráður
Persónusköpun
Umhverfi
Tími
Láttu foreldri og/eða forráðamann lesa yfir uppkastið og lagfærðu eftir ábendingar.
Skrifaðu og settu upp bókina:
Þú hefur að mestu frjálsar hendur hér en þú verður að gera forsíðu á bókina og hafa hana að lágmarki 8 til 10 blaðsíður.
Þú kemur í námssamtal við kennara til að láta meta heimaverkefnið þitt. Hér við hliðina sérðu hæfniviðmið og viðmið um árangur fyrir verkefnið.