Íbúðin er frátekin: Frá 8. sept. til 23. okt. 2026
Íbúðin er frátekin: Frá 9. feb. til 23. feb. 2027
Íbúðin er frátekin: Frá 1. mars. til 1. júní. 2027
Íbúðin er frátekin: Frá 3. júní. til 24. júní. 2027
Eigendur SJBald ehf eru eigendur að íbúð á Spáni, íbúðin er á svæði skammt sunnan við Torrevieja, ca 5 km. ( Í ORIHUELA COSTA, nálægt Los Altos) gatan nefnist C. Abdelacies, í Cinuelica R-I, íbúð no.136, (03189) og er skammt ofan -Punta Prima, svæðið hefur verið í mikilli uppbyggingu síðustu ár. Íbúðin er skammt fyrir ofan veginn sem liggur ekki alllangt frá ströndinni, vegurinn nefnist N-332. Nálægt eru nokkrir stórmarkaðir og stutt er í matvörubúð (Consum) eða um 5 mínútna gangur þegar gengið er í vestur fjær ströndinni, gengið er undan brekku með innkaupin. Íbúðin er á jarðhæð og er endaíbúð í þriggja hæða blokk, blokkin og byggingarnar umhverfis hana voru byggðar á árunum 2003 til 2005 og eru byggðar samkv. evrópskum staðli,í þeim er meiri einangrun og vandaðri frágangur en gengur og gerist á Spáni fyrri tíma.
Haustið 2018 var komið á nettengingu með ljósleiðara í íbúðinni, þráðlaus, (WEP), aðgangur á TP-LINK á router, tengingin er hjá Factura Ole Comunicación .
Íbúðinni fylgir allur búnaður til afnota þegar dvalið er í henni, í stofu er hornsófi sem einnig er svefnsófi og gott borðstofusett með 4 stólum, gott 43" sjónvarp teng við internetið.
Í stofulofti eru tvær viftur. til upphitunar eða kælingar eru tvær varmadælur, ein í stofunni og hin í hjónaherbergi, þessum búnaði er stjórnað með fjarstýringu en. þessi búnaður er algengur í heitari löndum. Í hjónaherberginu er gott 160 cm. rúm, auk náttborða og stór fataskápur, í lofti er vifta, allar viftu í íbúðinni með stillanlegu ljósi og hraðastýring, allt með fjarstýringum voru endurnýjaðar 2023
Í minna herberginu er stækkanlegt rúm 90 cm. HEMMES (sófarúm) frá IKEA (2023), sem verður 2 x 90 cm. samtals 180 cm. gott rúm, þar er ágætur skápur þar sem sólhúsgögn eru geymd, í honum er nóg pláss þegar húsgögnunum hefur verið komið fyrir í sólinni á pallinum utanhúss við íbúðina. í minna herberginu er ekki hitunar- eða kælibúnaður en þar er vifta með ljósi og fjarstýringu. Fyrir öllum gluggum eru rimlagardínur.
Eldhúsið er búið öllum helsta búnaði til matargerðar, keremik eldavél, blástursofn, örbylgjuofn, brauðrist, pottar-pönnur,hnífapör og almennt leirtau. Í eldhúsi er góður búrskápur þar sem örbylguofnin er og stór ísskápur með frysti.
Inn af eldhúsi er hreinlætisaðstaða, þar eru uppþvottavél, tauþvottavél og þurrkari, þar er einnig aðstaða fyrir annan búnað.
Inn af þvottaðstöðinni er nýlegt gasgrill með steikjarplötu, hægt er að fara með það framm á verönd og nota, gæta þarf þess að þrífa það vel eftir notkun og ganga frá því á sama stað þegar íbúði er yfirgefin.
Í íbúðinni er rúmgott gluggalaust baðherbergi, Í því er WC og vaskur, þar undir vaskaskápur með útdregnum skúffum fyrir td. handklæði og annað, einnig skápur fyrir snyrtivörur og annan búnað. Í baðherberginu er rúmgóð sturta, hluti þessa búnaðar var endurnýjaður 2023. Þá er í baðherberginu góður spegill og hárblásari, í axlarhæð frá gólfi er 600-1200 W ofn sem gott er að kveikja á áður en farið er í sturtu, til loftræstingar er útblástursvifta.
Til hliðar við inngangin frá götu er rúmgott bílastæði.
Þar sem þetta er endaíbúð á jarðhæð fylgir íbúðinni mikið rými til austurs og suðurs, sólin kemur snemma upp á svæðið utan við íbúðina og helst þar allan daginn þar sem önnur hús skyggja ekki á. Íbúðinn er í þyrpingu margra íbúða sem nefnist Cinuelica R-I. gatan C. Abdelacies, bæði blokkaríbúða og svokallaraðra fjarka, þeim fylgir afnot af tveimur mjög góðum sundlaugargörðum annar staðsettur bakatil við blokkina ( mínútu gangur, eða minna ) hinn aðeins neðar, sami lykill að báðum sundlaugargörðunum.
Góðir golfvellir eru í 5 mínútna akstri frá íbúðinni, ofan hraðbrautarinnar. Einnig eru margskonar þjónustustaðir í göngufæri, t.d. gokart, Sundlaugagarður, þar sem íslendingar hittast á föstudögum og spila mínigolf La Chismosa Pool, laugardagsmarkaður þar fyrir neðan stórt moll, La Zenia Boulevard, pósthús og margir matsölustaðir ca. 15 mínútu gangur í allar áttir svo leigubílar niður við veg 332 og (við Consum matvörubúð) og fleiri stöðum.
Meðferð gæludýra td. hunda er ekki heimil í íbúðinn.
Í einhverjum tilfellum er möguleiki að fá að dvelja íbúðinni á sangjörnu verði, til skemmri tíma í senn, sjá má hér fyrir ofan undir 'Bókað hefur verið til dvalar í íbúðinni, hvort hún hafi verið, frátekin: Skilyrði fyrir dvöl er að skila henni hreinni.
Ekki er boðið upp á þjónustu með þrif.
Senda má fyrirspurn á sjbald@mi.is eða hringja - 892-4465.
Uppfært: sept. 2025