Heimasíða þessi var fyrst uppsett um áramótin 2003-2004 og er viðhaldið af eigendum með aðstoð frá Ara Baldurssyni, (midlari.is) Ari er bróðir eiganda SJBald ehf.
SJBald ehf er lítið byggingafyrirtæki sem stofnað var um mitt ár 2003 og er ætlað að starfa á almennum byggingarmarkaði á íslandi, helsta athafnasvæði fyrirtækisins er Akureyri og allt eyjarfjarðarsvæðið. Eigendur SJBald ehf. eru hjónin Sigurður Jónas Baldursson Húsasmíðameistari og Guðrún Valdís Eyvindsdóttir húsfreyja og fyrrum sauðfjárbóndi, núverandi stuðningsflulltúi, nú hætt að vinna, hefur starfað síðustu ár í Naustarskóla á Akureyri, þau hafa til haustsins 2010 rekið sauðfjárbú ásamt kartöflurækt á Grýtubakka I í Grýtubakkahreppi, samhliða því hafa þau staðið fyrir fjölþættri þjónustu við byggingariðnað víðsvegar á norðurlandi, frá því Sigurður Jónas fékk réttindi til húsasmíði. Til ársins 2023 hafa fimm nemar lokið námi við húsasmíði hjá Jónasi.
Fyrstu árin var þjónustan að mestu við íbúa Grýtubakkahrepps við byggingu íbúða á Grenivík og sveitinni sunnan Grenivíkur, einnig bygging allskonar útihúsa allt frá útikömrum til stærri fjósa, Jónas hefur séð um byggingu ýmsra útihúsa í öðrum sveitafélögum, svo sem byggingu tveggja fjósa í Svarfaðardal. Þá hefur Jónas setið í nefndum fyrir sveitafélagið sem hann áður bjó í meðal annars byggingarnefndum varðar byggingarfulltrúa sveitafélagsins í mörg ár.
Í byrjun ársins 2010 var ákveði að bregða búi og flytja til Akureyrar og jörðin leigð til ábúðar næstu fjögur ár til að byrja með. Eigendur SJBald eru búsett í Einilundi 2 A, á Akureyri.
Eftir árið 1999 hefur byggingarstarfsemin einskorðast við byggingu einbýlishúsa á Akureyri, og tókst að aðlaga það vinnunni við búskapinn á Grýtubakka, í samvinnu við Harald Árnason tæknifræðing á Akureyri, hefur þróast aðferð að byggja einföld timburhús sem sett eru saman úr einingum og reistar á steyptan grunn, einingarnar voru smíðaðar í verkstæðisbyggingu á Grýtubakka og fluttar til Akureyrar.
Frá árinu 2000 hafa verið byggð og seld níu einbýlishús á Akureyri , fjögur við Urðargil, hús númer 6,8,10, og 12 , eitt hús númer 1 við Fossagil og fjögur við Stekkjartún, hús númer 3,5,7,og 9, og eitt hús við Hólatún númer 9, fjögra íbúðar raðhús við Hólatún 11 til 17. Rétt fyrir svokallað bankahrun var lokið við byggingu parhús við Grenilund, 2009 bauð SJBald í byggingu parhús á Grenivík, í alútboði og var því húsi skilað í des sama ár, að endingu gerðum við hjá SJBald verulegar breytingar á neðrihæð Grenivíkurskóla í framhaldi af útboði.
Við búskaparlok 2010 á Grýtubakka greindist eigandinn, Jónas með mjög erfitt hjartaflökkt, voru gerðar tvær hjartaaðgerðir á Landspítala, svo kölluð brennsla fyrst, 2012 og önnur aðgerð skömmu eftir áramót 2013, auk lyfja hefur náðst að mestu fyrir hjartaflökktið.
Með hléum með endurhæfingu og hjálp vina var komið fyrir verkstæðisaðstöðu í fyrrum loðdýrahúsinu sem haldið var eftir þegar jörði Grýtubakki var leigð öðrum til ábúðar, 2011 í okt. var stofnuð 4600 m2 lóð um loðdýrahúsið og skilið frá jörðinni Grýtubakka I, lóðin og húsið fékk nafnið Grýta.
Sumarið 2013 stóð SJBald fyrir byggingu fjárhúsa á jörðin Hóli í Grýtubakkahreppi auk ýmsa annar verkefna, í árslok 2013 festu eigendur fyritækisins kaup á raðhúsaíbúð við Einilund og í framhaldi var íbúðin við Grenilund seld en sú íbúð var síðasta íbúðin sem fyrirlækið byggði á Akureyri, fyrstu mánuðir ársins 2014 fórur í að endurgera íbúðin við Einilund.
Um mitt sumar 2014 framm yfir áramót 2015 tók SJBald þátt í að viðbyggja og endurbyggja eldri hlöðu í Dæli í Fnjóskadal og koma fyrir lausagöngufjósi og mjaltaþjóni.
Sumarið 2015 lenti eigandi SJBald í umferðaslysi í frammhaldi af því átti hann við aukin axlavandræði sem endaði með stórri axlaraðgerð í febrúar 2016 og endurhæfingu framm yfir mitt ár 2016.
Seinnihluta 2016 tókum við þátt í að útbúa gistihús úr tveimur starfsmannagámum á Bægisá 2 í Hörgárbyggð.
Nóvember 2016 var gengið frá sölunni á jörðinni okkar Grýtubakka I og afhent 1. desember sama ár.
Hluti af árinu 2017 og fyrripartur 2018 fór í að byggja við og koma upp afdrepi okkar á Grýtu. Seinnihluta 2018 tókum við að endurbyggja og lagfæra íbúðir við Þingvallastræti á Akureyri og náði það framm á árið 2019, um mitt á 2019 var tekið þátt í að endurbyggja eldra hús í Réttarholti í Grýtubakkahreppi við lok þess verk kom í ljós að ekki yrði komist hjá verulegrar viðgerða á vinsti öxl.
Febrúar 2020 var aðgerð gerð á vinsti öxl og saumaðar sinar sem voru búnar að vera óvirkar í mörg ár, stóð endurhæfing í stóranhluta þess árs, í frammhaldi var gert örorkumat á eiganda SJBald sem leiddi til þess að smíðavinnu viðkomandi væri að mestu lokið.
Upphafi árs 2021 var farið í að taka að sér byggingjastjórastarfsemi og umsjá byggingaframmkvæmda.
Í ágúst 2023 var flogið með eiganda SJBald með sjúkraflugi frá Akureyri á Landspítala, þar beint í hjartaþræðingu eftir greiningu með 95% stíflaða kransæð, næstu vikur eftir það fóru í það að koma sér í gott form, enda veitti það ekki af, miðað við það sem áður var.
Í árbyrjun 2026 eru 32 verkefni í vinnslu eða loki hjá byggingarstjóra og hafa verið virk hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Uppfært í okt. 2024.