Ýmsar lyfjagjafir eru gefnar í hjúkrunarmóttökunni, ýmist í æð, í vöðva eða undir húð. Meðal annars gefum við járn, beinþéttnilyf, mígrenislyf, B vítamín, Testósteron o.fl.
Járngjöf í æð er meðferð þar sem járn er gefið beint inn í blóðrásina í gegnum æð. Það er yfirleitt blandað í saltvatn og gefið með dreypi á 15-60 mínútum.
Hvenær er slík meðferð notuð?
Járngjöf í æð er yfirleitt valin þegar:
Járnskortur eða járnskortsblóðleysi er til staðar
Járntöflur virka ekki, þolast illa eða frásogast ekki nægilega
Þörf er á að hækka járnbirgðir hratt (t.d. fyrir aðgerð eða eftir mikla blæðingu)
Hvernig fer meðferðin fram?
Lítill æðaleggur er settur í æð, oftast í handlegg. Blóðþrýstingur er mældur. Járnið er gefið hægt, yfir 15–60 mínútur. Fylgst er með þér meðan á meðferð stendur.
Hver er munurinn á Monofer og Venofer?
Þessir tveir járngjafar eru mjög svipaðir að nánast öllu leyti. Helsti munurinn er að Monofer er bundið við stabílt kolvetni en Venofer er bundið við súkrósa. Monofer losnar því hægar út í blóðið og er því hægt að gefa í stærri skömmtum. Venofer losnar mun hraðar og þarf því að skipta upp í nokkrar gjafir til að forðast miklar aukaverkanir.
Hvenær byrjar maður að finna áhrifin?
Sjúklingar byrja oft að finna fyrir minni svima og mæði á fyrstu 3-7 dögunum. Þreyta og heilaþoka lagast eftir 1-2 vikur og fullri virkni er náð eftir 3-6 vikur.
Hversu fljótt eftir járngjöfina er hægt að meta árangurinn með blóðprufu?
Oft er óþarfi að fara í blóðprufu eftir járngjöf. En til að mæla rétt áhrif eftir járngjöf í blóðprufu ætti að bíða allavega 2-4 vikur með að mæla hemoglóbín og 6-8 vikur með að mæla járn og ferritín.
Fyrst á eftir gjöf hækkar járn og ferritín í blóði mikið. Það segir okkur bara að það hefur verið gefið en ekki hversu mikið af því líkaminn hefur nýtt svo niðurstaðan er ekki marktæk fyrr en 6-8 vikum eftir gjöfina.
Á að taka járntöflur á sama tíma?
Ef þú ert að taka járntöflur er best að sleppa þeim í 1-2 vikur eftir járngjöfina þar sem líkaminn getur hvort eð er ekki tekið upp meira járn í bili. Það bætir því engu við en eykur líkur á aukaverkunum.
Helstu aukaverkanir
Algengar (5–20%):
Höfuðverkur, ógleði, járnbragð í minni, roði/hitatilfinning í húð, mildir vöðva- og liðverkir, þreyta í 1-2 daga.
Innrennslis tengdar:
Tímabundin hitatilfinning, svimi og væg þyngslatilfinning í brjósti.
Alvöru ofnæmislost er gríðarlega sjaldgæft < 0,01% en einkennin eru: kláði, útbrot, þyngli í brjósti, mæði, blóðþrýstingsfall og bólgnar varir eða háls (mjög sjaldgæft). Ofnæmislost gerist yfirleitt fljótlega eftir að innrennslið hefst og þá ert þú í öruggum höndum hjá okkur.
Eitthvað sem ég þarf að hafa í huga eftir meðferðina?
Gleymsla
Járnið geymist við stofuhita.