Að virkja nemendur í eigin námi með áherslu á 21. aldar hæfni


Um verkefnið

Samfélagið hefur breyst mikið á síðustu árum og hafa því áherslur samfélagsins breyst með. Sú hæfni sem að áður þótti æskileg til að eiga farsælt líf er allt önnur í dag. Stofnanir og samtök hafa tekið saman þá hæfni og þekkingu sem að fólk þarf í dag til að lifa farsælu lífi og það kallar 21.aldar hæfni. Þetta verkefni tekur mið af þessari hæfni og þeirri menntastefnu sem að Aðalnámskrá grunnskóla gefur út. Verkefnið er ætlað að kenna nemendum á þessa hæfni og á sama tíma efla námsvitund þeirra. Þetta verkefni er sett upp á vefsíðu til að auðvelda nemendum og kennurum aðgengi að verkefninu. Meginmarkmið verkefnisins er að koma til móts við síbreytilegt samfélag og þjálfa nemendur í hæfni sem geta hjálpað þeim í því samfélagi.