Til að byrja með þarf kennari að skrá sig inn á síðuna og óska eftir að aðgangur sé skráður sem kennara aðgangur. Þegar slíkt er komið er hægt að búa til bekki og gefa nemendum aðgang að svæði fyrir þau. Athugið að nemendur þurfa ekki að skrá sig inn sjálf með netfangi. Hægt er að gefa hverjum og einum dulnefni með lykilorði sem þau vita. Slíkt passar upp á að persónugreinanlegar upplýsingar komi aldrei fram.
Hér að neðan má sjá leiðbeiningamyndönd þar sem farið er yfir gagnlegar upplýsingar og aðferðir.
Einnig er hægt að fylgja leiðbeiningum af Rasperry Pi foundation þar sem búið er að setja inn námskeið í forritun með leiðbeiningum og skref fyrir skref upplýsingum í tengslum við Scratch. Þetta er frábær síða með leiðbeiningum fyrir þá sem eru að taka sín fyrstu skref í forritunarkennslu og eru óöruggir.