Velkomin síðu þróunarverkefnis sem miðar að því að nýta forritunarkennslu til að efla rökhugsun og þrautsegju sem nýta má í stærðfræðikennslu.
Þessi síða er í stöðugri þróun þar sem verkefni bætast við jafnt og þétt eftir því sem reynsla kemur á þau. Upphafleg tilurð þessa er rannsóknarverkefni sem miðaði að því að nýta forritun til að auka rökhugsun barna á mið- og unglingastigi. Í gegn um það ferli hafa safnast verkefni, matstæki og listar yfir gagnlegar síður sem aðstoða einmitt við slíka þjálfun.
Vonin er að eftirfarandi verkefni nýtist sem flestum í leik og starfi og að sem flestir verði öruggari í kennslu forritunar.