Þetta matstæki var þróað sem hluti af rannsókn til að gefa kennurum tækifæri til að meta rökhugsun nemenda.
Gert er ráð fyrir að nemendur fái 40 mínútur til að leysa eins mikið af þrautum og þau geta. Ekki er farið yfir með nemendum eftir á hver árangur þeirra var heldur er matstækið lagt aftur fyrir þegar meta á hvort framfarir hafi orðið eftir ákveðinn tíma eða ákveðinn fjölda verkefna í forritun.
Matstækið er hægt að leggja fyrir bæði á mið- og unglingastigi.