Um Breakout

Hvað er Breakout?

Breakout Edu svipar til "escape" leikja. Nemendur standa frammi fyrir vanda sem þeir þurfa að leysa með því að ráða fram úr vísbendingum í sameiningu og ná að opna kassann áður en tíminn rennur út.

Breakout er einnig til í stafrænum útfærslum ef kassinn er ekki til staðar eða undirbúningur af skornum skammti.




Breakout Edu er stórskemmtileg viðbót við allar skólastofur og hentar öllum aldri og í öllum námsgreinum.

Hefur mjög góð áhrif á hópinn, eflir samvinnu, samskiptahæfni og þrautseigju ásamt því að efla þrautalausnahugsun og ályktunarhæfni.

AF hverju Breakout?